Málþing ungra sagnfræðinga, Bleika slaufan og breytingaskeiðið episode artwork

EPISODE · Oct 3, 2024 · 50 MIN

Málþing ungra sagnfræðinga, Bleika slaufan og breytingaskeiðið

from Mannlegi þátturinn

Næstkomandi laugardag heldur Félag um átjándu aldar fræði málþing undir yfirskriftinni Rannsóknir ungra sagnfræðinga á sögu Íslands á átjándu og nítjándu öld. Þór Martinsson, sagnfræðingur og kynningarfulltrúi Reykjavíkur Akademíunnar, er fundarstjóri á málþinginu, hann kom í þáttinn í dag ásamt Kolbeini Sturlu G. Heiðusyni sagnfræðingi, en hann heldur erindi á málþinginu um eigur vinnuhjúa í Skagafirði um miðja nítjándu öld. Í ár er 25 ára afmæli Bleiku slaufunnar fagnað. Slagorðið í ár er „Þú breytir öllu“ og er sjónum beint að aðstandendum og þeim þakkað, þeim sem hvorki búast við né ætlast til að fá þakkir, fólkinu sem er svo mikilvægt en á það til það að gleymast. Athyglinni er beint að aðstæðum þeirra, því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna í alvarlegum veikindum en líka þeim áhrifum sem veikindi ástvinar hafa óhjákvæmilega á líf þeirra. Lóa Björk Ólafsdóttir hjúkrunarfræðingur og ráðgjafi hjá Krabbameinsfélaginu kom til okkar. Breytingaskeiðið er miklu meira en „bara“ hitakóf. Þetta tímabíl í lífi okkar kvenna, er langt og margar konur eru með margþætt og óþægileg einkenni eins og svefntruflanir, streitu, heilaþoku, minnisleysi, blæðingatruflanir, liðverki, þurrk í slímhúð og þrálátar blöðrubólgur. Fleiri hundruð konur hafa sótt námskeið Þorbjargar Hafsteinsdóttur Konur, hormónar og hollusta. Þorbjörg hefur skrifað margar bækur um samspil mataræðis og heilsu og haldið ótal mörg námskeið hér heima og erlendis. Þorbjörg kom til okkar í dag sagði okkur líka frá mataræði sem gagnast við gigt og bólgum. Tónlist í þættinum: Í minni skel – Bogomil Font og Salsakommúnan (Sölvi Rögnvaldsson, texti Sæmundur Rögnvaldsson ásamt Sölva) Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson) Í gegnum hollt og hæðir / Þursaflokkurinn (Egill Ólafsson, texti Þórarinn Eldjárn) (If paradise is) Half as Nice / Amen Corner (Battisti, Fishman & Mogol) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 3, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Málþing ungra sagnfræðinga, Bleika slaufan og breytingaskeiðið

0:00 50:57

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 3, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!