Málþingið Hvað um okkur? Og íslenskir ástargerðarmeistarar episode artwork

EPISODE · Apr 10, 2025 · 50 MIN

Málþingið Hvað um okkur? Og íslenskir ástargerðarmeistarar

from Mannlegi þátturinn

Á morgun standa Landssamtökin Þroskahjálp og diplómanám HÍ fyrir málþingi þar sem fatlað fólk er í aðalhlutverki. Yfirskrift málþingsins er „Hvað um okkur?“ Þar verða flutt erindi og svo fer fram óformlegt sófaspjall þar sem fólk með fötlun deilir sinni reynslu úr atvinnulífinu, menntun, aðgengismálum og bara lífinu sjálfu. Það eru hindranir og áskoranir á öllum þessum sviðum og þau sem upplifa þær daglega eru auðvitað best í því að miðla því hverjar þær eru. Hekla Björk Hólmarsdóttir og Jóhanna Brynja Ólafsdóttir komu í þáttinn og sögðu frá sinni reynslu og með þeim kom Anna Lára Steindal framkvæmdastjóri Þroskahjálpar. Fyrirtækið Livefood ehf. var stofnað í nóvember 2019 með það að markmiði að framleiða hágæða íslenska grænkera osta. Livefood festi kaup á iðnaðarhúsnæði í Hveragerði sem hefur aðgengi að jarðvarma þar sem þau rækta mikið af því hráefni sem notað er í þeirra vörur. Kartöfluostar eru sérstaða ostanna, eða ástanna, og þróunarvinna hefur staðið í langan tíma þar sem áherslan var lögð á að geta framleitt plöntuost úr íslensku hráefni. Þessa osta er hægt að rífa, sneiða, smyrja og bræða og við fengum Erlend Eiríksson ástagerðarmeistara og Ingólf Þór Tómasson, viðskiptafélaga hans til að segja okkur allt um þetta ævintýri í þættinum í dag. Tónlist í þættinum í dag: Þú komst við hjartað í mér / Hjaltalín (Toggi, Þorgrímur Haraldsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Samferða / Mannakorn (Magnús Eiríksson Þusund sinnum segðu já / Our Lives og Toggi (Rúnar Þórisson, Rafn Jónsson, Helgi Björnsson og Örn Jónsson, texti Helgi Björnsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 10, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Málþingið Hvað um okkur? Og íslenskir ástargerðarmeistarar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 10, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!