EPISODE · Feb 19, 2026 · 50 MIN
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum
from Mannlegi þátturinn
Í haust unnu Kópavogsbær og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins greiningu á áfangastaðnum Kópavogi með það að markmiði að vinna hugmyndir um hvernig hægt sé að efla áfangastaðinn. Verkefnið mun nýtast fyrir framtíðarsýn Kópavogsbæjar í tengslum við ferðaþjónustu og einnig í tenglsum við þróun og markaðassetningu á höfuðborgarsvæðinu. Og það er ekki bara Kópavogur sem Markaðsstofa Höfuðborgarsvæðisins er að skoða heldur hefur hún einnig unnið með Hafnarfjarðarbæ og Seltjarnarnesi. Inga Hlín Pálsdóttir, framkvæmdastjóri markaðsstofu Höfuðborgarsvæðisins kom í þáttinn í dag. Hvað er sagnfræði? Þessi spurning er heiti málþings sem Sagnfræðingafélag Íslands og Sagnfræðistofnun stendur fyrir á laugardaginn. Þar munu fimm fyrirlesarar leitast við að svara þessari spurningu sem Sagnfræðingafélagið bar upp fyrir um 20 árum í fyrirlestraröð þar sem sagnfræðingar, listafólk, fjölmiðlafólk og stjórnmálafólk spreyttu sig á spurningunni. Ragnhildur Anna Kjartansdóttir, formaður Sagnfræðingafélags Íslands og Súsanna Margrét Gestsdóttir sagnfræðingur komu til okkar í dag og sögðu frá málþinginu og spreyttu sig á að svara spurningunni, hvað er sagnfræði? Svo kom Valdimar Þór Svavarsson til okkar í mannlegu samskiptin eins og alla fimmtudaga í vetur. Það í dag talaði hann um örmögnun, meðvirkni og öndun. Tónlist í þættinum í dag Gleðin með þér / Þuríður Sigurðardóttir (lagahöfundur ókunnur, texti Helgi Pétursson) Ég gef þér allt mitt líf / Björgvin Halldórsson og Ragnhildur Gísladóttir (Jóhann Helgason, texti Jón Sigurðsson) She’s Done it Again / Jóhann Helgason (Jóhann Helgason) Rúllukragapeysan mín / Bítlavinafélagið (Jón Ólafsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins, hvað er sagnfræði og örmögnun og öndun í mannlegu samskiptum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.