Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari episode artwork

EPISODE · Sep 15, 2026 · 52 MIN

Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst um Matsmannafélag Íslands í dag, en Ragnar Ómarsson formaður þess kom í þáttinn. Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem flestir Íslendingar ráðast í. Samt eru enn uppi álitaefni um upplýsingagjöf við sölu fasteigna, réttindi kaupenda og seljenda og meðferð byggingargalla. Þarna koma matsmenn til sögunnar og Ragnar sagði okkur frá starfi þeirra og ráðstefnu Matsmannafélagsins sem verður á fimmtudaginn. Núna í október mun Líney Emma Jónsdóttir dýralæknir klára nám í nálastungum fyrir hross og gæludýr. Við heyrðum í henni í þættinum í dag og hún sagði okkur frá ráðstefnu sem haldin er hér á landi og hefst á morgun þar sem dýralæknar hvaðanæva að úr heiminum hittast og bera saman bækur sínar. Þar á meðal er hópur dýralækna sem notar nálastungur í sínum meðhöndlunum. Líney Emma vonast til að það takist að vekja athygli Íslendinga á viðurkenningu og útbreiðslu nálastungu í dýralækningum í heiminum í dag. Einar Sveinbjörnsson kom svo til okkar í veðurspjallið. Það sem kom við sögu í dag var hitarnir í Evrópu sem hafa slegið öll met, afleiðingar El Nino sem er afar öflugur og svo eru haustlitirnir farnir að sýna sig hér heima, erum við með söknuð og trega í sumarlok eða hvað? Að lokum heyrðum við ljóðið Gangnadagsmorgunn eftir Sigurð Óskar Pálsson frá Borgarfirði Eystra. Tónlist í þættinum: Leikur að vonum / Mánar (Ólafur Þórarinsson Litlir kassar / Þokkabót (Pete Seeger, texti Þórarinn Guðnason) Þín innsta þrá / B.G. og Ingibjörg (Granata & Verard, texti Jóhanna G. Erlingsson) Spánardraumur / Hljómsveit Ingimars Eydal (Caerts, Roozenstraten, texti Einar Haraldsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Sep 15, 2026

Embed this episode

Ready to play

Matsmannafélag Íslands, nálastungur fyrir hross og gæludýr og veðurspjallið með Einari

0:00 52:41

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on September 15, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!