Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann episode artwork

EPISODE · Jun 24, 2026 · 50 MIN

Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti af öðru ofbeldi. Ranghugmynda hefur gætt um slíkt, en rannsóknir leiða í ljós meiri hættu en áður hefur verið talið. Hver einasta sekúnda sem flæði blóðs er heft hefur áhrif á heilann og lítið átak þarf til að valda skemmdum. Ástþóra Kristinsdóttir, sérfræðingur í ofbeldismálum hjá Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu, og Drífa Snædal, talskona Stígamóta, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá. Stefnumót við fortíðina, svangar ruslaverur og dansiball í göngugötunni er allt partur af Listasumri á Akureyri sem hefst á morgun og stendur til 18.júlí. Við slógum á þráðinn norður og töluðum við Elísabetu Ögn Jóhannsdóttur verkefnastjóra menningarmála hjá Akureyrarbæ. Edda Olgudóttir kom svo til okkar í vísindaspjallið og í dag talaði um rannsóknir á heilanum og heilaheilsu. Tónlist í þættinum í dag: Vor í Reykjavík / Uppáhellingarnir (Andri Ólafsson, texti Þórarinn Már Baldursson) Ást og friður / Halli Reynis og Vigdís Jónsdóttir (Halli Reynis) Refur / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Við gengum tvö / Ingibjörg Smith (Friðrik Jónsson og Valdimar Hólm Hallstað) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

NOW PLAYING

Með lífið í lúkunum, Listasumar á Akureyri og vísindaspjall um heilann

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on June 24, 2026.

What is this episode about?

Við fræddumst um átakið Með lífið í lúkunum hér á eftir. Samtök og stofnanir sem vinna með brotaþolum ofbeldis hafa blásið til samfélagsmiðlaátaks til að vekja athygli þeirri hættu sem fylgir kyrkingartökum, bæði sem hluti af kynlífi eða sem hluti...

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes, you can download this episode by clicking the download button on the episode player, or subscribe to the podcast in your preferred podcast app for automatic downloads.
URL copied to clipboard!