Mottumars, Dagur heyrnar og veðurspjallið með Einari episode artwork

EPISODE · Mar 3, 2026 · 50 MIN

Mottumars, Dagur heyrnar og veðurspjallið með Einari

from Mannlegi þátturinn

Mottumars, árlegt árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins er í fullum gangi, þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir starfsemi félagsins. Nýju sokkarnir eru komnir í sölu um allt land og nýr matarvefur er kominn í loftið þar sem hollar uppskriftir eru aðgengilegar öllum. Ása Sigríður Þórisdóttir, kynningarstjóri Krabbameinsfélagsins, og Hólmfríður Sigurðardóttir, formaður félags maka karla með blöðruhálskrabbamein, komu í þáttinní dag. Í dag, 3.mars, er Dagur heyrnar árlegur viðburður sem Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) kom á fót og er haldið á lofti hér af Heyrnar- og talmeinastöð Íslands (HTÍ) í samvinnu við ýmis hagsmunasamtök heyrnaskertra og fatlaðra á Íslandi. Í ár eru skilaboðin - Heyrnavernd fyrir öll börn - þar sem skorað er á heilbrigðisyfirvöld að koma á reglulegri skimun á heyrn barna við upphaf skólagöngu. Hildur Heimisdóttir, kennsluráðgjafi hjá Hlíðaskóla og HTÍ og Telma Sigtryggsdóttir formaður Heyrnahjálpar komu í dag og sögðu okkur betur frá viðburðinum og átakinu. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag sagði hann okkur frá sendibréfi sem honum barst þar sem greint er frá merkingu veðurorða og hugtaka í Árneshreppi á Ströndum. Svo sagði Einar okkur frá bók sem hann fann á Bókamarkaðinum eftir Þorvald Friðriksson um áhrif Kelta m.a. á íslenska tungu. Þar er farið yfir uppruna orða eins og úrkoma, mugga, fönn og hret, sem upprunin eru úr keltnesku. Svo var það auðvitað veðurspáin næstu daga og veðurbreytingarnar sem urðu í síðustu viku. Tónlist í þættinum í dag: Þrjú tonn af sandi / Haukar (Blackwell and Vinfield, texti Þorsteinn Eggertsson) Impossible / Hraun (Hraun og Svavar Knútur) Half a minute / Matt Bianco (Mark Reilly, Danny White, and Kito Poncioni) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 3, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Mottumars, Dagur heyrnar og veðurspjallið með Einari

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 3, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!