Nagladekkin og svifrykið, Petra paprika og rafsegulmeðferð á Heilsuvaktinni episode artwork

EPISODE · Nov 19, 2024 · 50 MIN

Nagladekkin og svifrykið, Petra paprika og rafsegulmeðferð á Heilsuvaktinni

from Mannlegi þátturinn

Reykjavíkurborg hefur sett sér markmið til næstu ára um að bæta loftgæði í borginni og vill hvetja íbúa til að taka þátt í þeirri vegferð. Eitt af fyrstu og mikilvægustu skrefunum er að draga verulega úr notkun nagladekkja, sem spilar stóran þátt í slæmum loftgæðum, sérstaklega yfir vetrartímann. Fyrir utan við svifryksmyndun og slæm loftgæði, valda nagladekk miklu sliti á götum sem eykur viðhald og kostnað. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkurborgar kom í þáttinn og fræddi okkur um sviryk og mikilvægi loftgæða. Hafdís Helgadóttir næringafræðingur kom svo til okkar en hún fræddi okkur um næringu og hvernig við getum aðstoðað börnin okkar og yngri kynslóðirnar að skilja betur næringu og áhrif hennar á líkamann og þá getum við, fullorðna fólkið, einnig lært heilmikið í leiðinni. Hún fékk innblástur í fræðandi barnaefni úr sinni æsku, eins og teiknimyndaþáttunum Einu sinni var sem kenndu börnum til dæmis mannkynssögu á skemmtilegan hátt. Því ákvað hún að búa til barnabók. Hafdís sagði okkur frá því hvernig hún nýtti sér gervigreind og endaði svo sjálf sem bókaútgefandi. Rafsegulmeðferð, eða TMS meðferð eins og hún er kölluð, hefur reynst verulega árangursrík fyrir þá sem glíma við þrálátt þunglyndi og hafa ekki fundið viðunandi úræði við sínum sjúkdómi og eru jafnvel í svo mikilli vanlíðan að hún hefur djúpstæð áhrif á daglegt líf þess. Byrjað var að veita TMS meðferðina hér á landi fyrir tveimur árum og hafa á annað hundrað manns nýtt sér hana. Helga Arnardóttir ræddi á Heilsuvaktinni við Dag Bjarnason geðlækni og yfirlækni á Heilaörvunarmiðstöðinni í Skógarhlíð en þangað geta allir á landinu sótt þjónustu. Tónlist í þættinum Lífsgleði / Pónik (Jean & Vanguard, texti Þorvaldur Halldórsson og Erlendur Svavarsson) Allar þínar gjafir / Ragnheiður Gröndal og Finnur Árnason og Co. (Finnur Árnason, texti Árni Grétar Finnsson) Lifðu hægt / Hildur Vala (Svavar Knútur Kristinsson, texti Karl Ágúst Úlfsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 19, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Nagladekkin og svifrykið, Petra paprika og rafsegulmeðferð á Heilsuvaktinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 19, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!