Ný námsbraut hjá VMA, hrós- og þakkarkort, huggunarmatur episode artwork

EPISODE · Jan 11, 2024 · 50 MIN

Ný námsbraut hjá VMA, hrós- og þakkarkort, huggunarmatur

from Mannlegi þátturinn

Í Verkmenntaskólanum á Akureyri er nú gerð tilraun með nýja námsbraut fyrir nemendur sem hafa ekki íslensku að móðurmáli. Þetta tilraunaverkefni var sett af stað vegna þess að nemendum sem höfðu engan grunn í tungumálinu fjölgaði hratt. Nýju brautinni er ætlað að skapa umgjörð í kringum þennan fjölbreyta hóp til að hjálpa þeim að læra íslensku sem nýtist svo í áframhaldandi námi eða á íslenskum vinnumarkaði. Við kíktum í heimsókn í Verkmenntaskólann og ræddum þar við þær Jóhönnu Björk Sveinbjörnsdóttur og Hörpu Jörundardóttur sem sögðu betur frá brautinni. Jensína Edda Hermannsdóttir leikskólastýra kom svo til okkar í dag, hún sagði okkur frá því hvernig þau hafa æft og iðkað jákvæða athygli með börnunum í Leikskólanum Laufásborg, þar sem þau notast meðal annars við hróskort og þakkarkort. Jensína útskýrði þetta betur fyrir okkur í þættinum. Við fengum svo innslag sem Björk Þorgrímsdóttir vann fyrir Mannlega þáttinn, en hún var starfsnemi hér á Rás 1. Hún var að velta fyrir sér fyrirbærinu comfort food, sem gæti verið þýtt á íslensku sem huggunarmatur. Hún spurði fjórar manneskjur á förnum vegi um þeirra huggunarmat. Svo talaði hún við Jón Þór Pétursson, nýdoktor í þjóðfræði um huggunarmat og hvað það er í raun flóknara að borða í dag þrátt fyrir allsnægtir og auðvelt aðgengi. Tónlist í þættinum í dag: Danska lagið / Bítlavinafélagið (Eyjólfur Kristjánsson) Helga / Magnús Kjartansson (Magnús Kjartansson Rock'n'roll öll mín bestu ár / Brimkló (lag K. Johnson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GÍGJA HÓLMGEIRSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 11, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Ný námsbraut hjá VMA, hrós- og þakkarkort, huggunarmatur

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 11, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!