EPISODE · Mar 6, 2026 · 50 MIN
Ögmundur Jónasson föstudagsgestur og matarspjall um hrísgrjón
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgesturinn okkar að þessu sinni er fyrrverandi sjónvarps- og útvarpsmaður, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra og fyrrverandi formaður BSRB. Ögmundur Jónasson kom til okkar í dag og við spjölluðum við hann um lífið og tilveruna, forvitnuðumst um hvar hans rætur liggja, af hvaða fólki hann er komin en hans ættir skiptast í tvær fylkingar í stjórnmálaskoðunum, hægri í móðurætt og vinstri í föðurætt. Ögmundur sagði okkur svo meðal annars frá námsárunum í Skotlandi og mörgu fleiru og svo er hann síður en svo sestur í helgan stein, eins og við heyrðum í þættinum í dag. Sigurlaug Margrét kom svo auðvitað í matarspjallið í dag og við skoðuðum með henni ýmsar hliðar á hrísgrjónum, t.d. grjónagrautinn, mismunandi tegundir af grjónum, hvernig hægt er að gera þau spennandi og svo aðeins um steikt hrísgrjón. Tónlist í þættinum í dag: Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason og hljómsveit Svavars Gests (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson Walk on the Wildside / Lou Reed Goldberg tilbrigði / Úrsúla Ingólfsdóttir Fassbind (Johann Sebastian Bach) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Ögmundur Jónasson föstudagsgestur og matarspjall um hrísgrjón
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.