Ólafur Stefánsson föstudagsgestur og ítalskt matarspjall episode artwork

EPISODE · Feb 13, 2026 · 50 MIN

Ólafur Stefánsson föstudagsgestur og ítalskt matarspjall

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Ólafur Stefánsson handknattleikskappi. Hann er auðvitað búinn að vera talsvert inni í stofum landsmanna í janúar í gegnum sjónvarpstækin sem hluti af handboltastofunni að fjalla um íslenska handboltalandsliðinu á EM karla. Við nutum þess auðvitað að fylgjast með löngum og farsælum ferli Ólafs með landsliðinu og í atvinnumennskunni þar sem hann vann nánast öll verðlaun sem hægt var að vinna og var ítrekað ofarlega á listum yfir bestu handknattleiksmenn í heiminum, ef ekki efstur. Eftir að ferlinum lauk hefur hann brallað ýmislegt, þjálfað og unnið í menntamálum og nú hefur hann stofnað fyrirtæki sem kallast Afreksmanneskjan, en tilgangur þess er að aðstoða ungmenni til að ná árangri í námi og íþróttum. Það er óhætt að segja að það brenni á honum enda fór hann á mikið flug að segja frá. Svo var það auðvitað matarspjallið með Sigurlaugu Margréti. Í dag, þar sem Guðrún var nýkomin til landsins frá Ítalíu, forvitnuðumst við um hvað stóð upp úr þegar kom að matarupplifun Ítalíuferðarinnar. Tónlist í þættinum í dag: Upp á rönd / Hjálmar og GDRN (Guðrún Ýr Eyfjörð Jóhannesdóttir og Sigurður Halldór Guðmundsson) Heyr mína bæn / Ellý Vilhjálms (Panzeri & Salerno, texti Ólafur Gaukur Þórhallsson) Passíusálmur nr. 51 / Ellen Kristjánsdóttir (Jón Ólafsson, ljóð Steinn Steinarr) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 13, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Ólafur Stefánsson föstudagsgestur og ítalskt matarspjall

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 13, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!