Ólaunuð vinna kvenna, hjónin í Heiðmörk og Er ekki allt í lagi heima hjá þér episode artwork

EPISODE · Dec 17, 2025 · 50 MIN

Ólaunuð vinna kvenna, hjónin í Heiðmörk og Er ekki allt í lagi heima hjá þér

from Mannlegi þátturinn

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB og Steinunn Bragadóttir, hagfræðingur hjá ASÍ hafa reglulega skrifað greinar í fjölmiðla á kvennaárinu 2025 og í nýjustu grein þeirra, sem birtist á vísi.is undir fyrirsögninni Ólaunuð vinna kvenna, tala þær um könnun sem Varða, Rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, gerði í sumar meðal félagsfólks stéttarfélaga innan ASÍ og BSRB. Þar voru kynntar niðurstöður um skiptingu ólaunaðrar vinnu á heimilum sambúðarfólks, bæði svokallaðrar annarrar vaktar og þriðju vaktar. Það sé áhyggjuefni að karlar taki hlutfallslega miklu styttra fæðingarorlof en konur, og að konur dragi oftar úr vinnu til að brúa bilið á milli fæðingarorlofs og leikskóla. Sigríður og Steinunn komu í þáttinn í dag. Sölufélag garðyrkjumanna hefur undanfarin ár valið ræktendur ársins innan sinna raða. Hjónin Inga Sigríður Snorradóttir og Óli Finnsson á garðyrkjustöðinni Heiðmörk í Laugarási hlutu þennan heiður árið 2023 og í ár fengu þau hvatningarverðlaun sölufélagsins. Fjölskyldan flutti árið 2021 úr Grafarvogi í Laugarás í Bláskógarbyggð eftir að hafa fest kaup á garðyrkjustöðinni Heiðmörk. Við slógum á þráðinn austur fyrir fjall og ræddum við hjónin í dag. Er ekki allt í lagi heima hjá þér er heimildaleikhúsverk um fjórar manneskjur sem allar ólust upp hjá móður með alvarlegan geðsjúkdóm. Verkið verður flutt í útvarpinu á Rás 1 annan í jólum kl.17. Við fengum Evu Rún Snorradóttur, leikstjóra og handritshöfund og Ragnar Ísleif Bragason, einn fjögurra þáttakenda í verkinu, til að segja okkur betur frá verkinu. Tónlist í þættinum í dag: Af álfum / Friðrik Ómar og Margrét Eir (Karl Olgeirsson) Undrastjarnan / Hljómar (lagahöfundur ókunnur, texti Rúnar Júlíusson) Den store stjerna / Sissel Kyrkebö og Bergen Fílharmóníusveit (Svein Gundersen & Trygve Hoff) It’s Beginning to Look a lot Like Christmas / Björgvin Halldórsson (Meredith Wilson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 17, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Ólaunuð vinna kvenna, hjónin í Heiðmörk og Er ekki allt í lagi heima hjá þér

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on December 17, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!