Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir episode artwork

EPISODE · Oct 2, 2024 · 50 MIN

Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir

from Mannlegi þátturinn

Theódór Gunnar Smith, matreiðslumaður, sjósundkappi, öndunarleiðbeinandi, „kælari“, setti Íslandsmet í ísbaði í síðustu viku með því að vera 45 mínútur og sex sekúndur á kafi í vatni við frostmark. Metið var sett á Akureyri þar sem aðstoðarmenn jusu sífellt krapi niður í baðið til hans til að halda því nógu köldu. Við fengum að vita hvernig þessi þrekraun fór fram og hvað fer í gegnum hugann á meðan. Það er nauðsynlegt að taka það fram að ekki er mælst til þess að fólk dembi sér í svona mikla kælingu án þess að gæta fyllsta öryggis en undirbúningurinn var gríðarlegur og þar skipti öndun mikilu máli og eins verður að taka það fram að Theódór endaði á bráðamóttökunni þar sem hann fékk hjálp við að ná aftur eðlilegum líkamshita og var skammaður þar fyrir, því illa hefði getað farið. Theódór stendur að námskeiðum í öndun á vegum símenntunar Háskólans á Akureyri ásamt dr. Auðbjörgu Björnsdóttur sem er forstöðumaður kennlsu og upplýsingatæknisviðs H.A. Auðbjörg var í hljóðveri RÚV fyrir norðan með Guðrúnu á meðan Theódór var ásamt Gunnari fyrir sunnan. Svo kom Þráinn Þorvaldsson í þáttinn. Hann hefur, ásamt öðrum, verið að vinna því því að stofna Samtökin Sólskinsstundir sem veita fólki sem hefur misst maka félagslegan vettvang til þess að hittast, fá stuðning, sækja menningarviðburði, borða saman, drekka kaffi og ferðast saman innanlands eða jafnvel erlendis. Þráinn sagði okkur frá sinni reynslu, en hann missti eiginkonu sína, Elínu Guðrúnu Óskarsdóttur, fyrir níu mánuðum og hann vill með þessu búa til vettvang fyrir fólk sem hefur reynslu af makamissi að hittast, vera félagsskapur og stuðningur. Þráinn benti á netfang sitt, ef fólk hefur áhuga á því að taka þátt í stofnun samtakanna: [email protected] Tónlist í þættinum: Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi Morthens) Dagar / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson og Aðalsteinn Ásberg) Ljúfa langa sumar / Ragnar Bjarnason (Gunnar Þórðarsson og Ólafur Gaukur Þórhallsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 2, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Öndunaræfingar og kæling og Samtökin Sólskinsstundir

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 2, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!