Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu episode artwork

EPISODE · Jan 20, 2026 · 50 MIN

Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu

from Mannlegi þátturinn

Kraftur, stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein stendur fyrir vitundarvakningu sem hefst á sunnudaginn í Hörpu þar sem perluarmböndin með áletrunni „lífið er núna“ eru perluð og seld. Sólveig Ása Tryggvadóttir, framkvæmdastjóri Krafts, kom í þáttinn en hún þekkir það af eigin raun að berjast við krabbamein. Með henni kom Eva Sigrún Guðjónsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri Krafts, til að segja okkur betur frá málefninu. Laugardaginn 31. janúar tekur Ástvaldur Zenki Traustason formlega við stöðu ábóta Zen á Íslandi. Ástvaldur Zenki hefur verið nemandi Jakusho Kwong-roshi í hart nær 30 ár og tekur nú við stöðu hans sem ábóti og aðal kennari Zen á Íslandi. Jakusho-roshi er upphafsmaður Zen á Íslandi og kom árlega til Íslands í um 25 ár. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Í dag talaði Einar um veðrið og tíðina hér heima, flughálkuna og af hverju hún myndast þó það sé hiti í lofti. Svo var það veðurspáin framundan, kuldahvirfill Stóri Boli vestan Grænlands sem kemur æðandi yfir N-Ameríku, en virðist síðan ætla hverfa fljótt aftur. Það er kalt í Austur-Evrópu og stríð í Úkraínu. Einar rifjaði upp þrjá óvenjulega kalda vetur 1940-1942 sem höfðu áhrif á gang síðari heimstyrjaldarinnar og Vetrarstíðið í Finnlandi. Þessir þrír vetur voru allir sérlega mildir hér á landi. Tónlist í þættinum: Austurstræti / Laddi (Þórhallur Sigurðsson) Egils appelsín / Spilverk þjóðanna (Egill Ólafsson, Valgeir Guðjónsson, Sigurður Bjóla Garðarsson, Sveinbjörn Egilsson og Kristján Jónsson) Röndótta mær / Jakob Frímann Magnússon (Jakob Frímann Magnússon) Don’t Try to Fool Me / Jóhann G. Jóhannsson (Jóhann G. Jóhannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 20, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Perlað fyrir Kraft, Ástvaldur Zen ábóti og glæpahálka í veðurspjallinu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 20, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!