EPISODE · Sep 1, 2026 · 50 MIN
PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu
from Mannlegi þátturinn
Við fræddumst í dag um heimsmeitaramótið PingpongParkison sem fer fram í Hannover í Þýskalandi í lok september. Hannes Guðrúnarson, borðtennisþjálfari og Vilborg Jónsdóttir, sem keppir fyrir hönd Íslands á mótinu, komu í þáttinn í dag. Borðtennis er, að þeirra sögn, eitt það besta fyrir fólk með parkinson. Parkinson hefur mörg ólík einkenni, eitt það þekktasta er skjálfti í höndum, en við borðtennisiðkun minnkar skjálftinn og ekki bara á meðan spilað er. Þau Hannes og Vilborg sögðu okkur betur frá þessu í dag. Er hægt að hlúa að sjálfum sér samhliða því að huga að öðrum og takast á við krefjandi verkefni? Rannsóknir sýna að einstaklingar sem sinna störfum sem fela í sér aðhlynningu fólks, geta verið útsettir fyrir neikvæðum heilsufarslegum áhrifum. Hins vegar sýna rannsóknir einnig fram á að samkennd getur dregið úr neikvæðum áhrifum. Við ræddum við Sólveigu Fríðu Kjærnested sérfræðing í klíniskri sálfræði í þættinum. Veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni var svo á sínum stað eftir sumarfrí og verður áfram í þættinum annan hvern þriðjudag. Við veltum fyrir okkur haustveðrinu, þó september sé skilgreindur sem sumarmánuður í veðurfræðinni hér á landi. Næturfrost, lægðarspá, monsúnvindar og skyndiflóð komu við sögu. Tónlist í þættinum í dag: Ljósvíkingur / Egill Ólafsson (Gunnar Þórðarsson, texti Ólafur Haukur Símonarson) Óralangt / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Wrap Your Troubles in Dreams / Dean Martin (Moll, Barris & Koehler) Singing in the Rain / Dave Brubeck Trio (Brown & Freed) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Embed this episode
Ready to play
PingPongParkinson, að huga að öðrum og sjálfum sér og næturfrost í veðurspjallinu
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.