Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð episode artwork

EPISODE · Oct 16, 2024 · 50 MIN

Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

from Mannlegi þátturinn

Björn Erlingsson hafeðlisfræðingur kom í þáttinn í dag og sagði okkur frá sögu hins fornfræga björgunarskips Vestfirðinga, Maríu Júlía BA 36, sem kom var safnað fyrir og að lokum smiðað í Danmörku. Skipið kom til Íslands árið 1950 og nýttist á fjölbreyttan hátt næstu áratugina, til dæmis er talið að áhafnir skipsins hafi bjargað um tvö þúsund manns og í skipinu var sérútbúin rannsóknarstofa fyrir fiskifræðinga og fyrir sjómælingar. Skipið var því fyrsti vísir að hafrannsóknarskipi á Íslandi. Í dag er skipið komið til hafnar á Húsavík en ætlunin er að gera það upp enda er skipið nú friðað með lögum. Björn sagði okkur merkilega sögu Maríu Júlíu í þættinum. Á laugardaginn fer fram málþing um fatlað fólk í tæknivæddri framtíð. Hugmyndafræði og ákvæði samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, sem er nú í lögfestingarferli á Íslandi, nýtast sem grunnviðmið til að meta bæði áhættu og tækifæri sem skapast með aukinni notkun gervigreindar og starfrænnar tækni. Í grundvallaratriðum er samningnum ætlað að tryggja fötluðu fólki jafnrétti og jafnræði á öllum sviðum. Heimsmarkmið SÞ eru sett fram með það að meginmarkmiði að skilja engan eftir og í þeim felst hugsjón um að búa til samfélag þar sem allir, þar á meðal fatlað fólk, njóti jafnra tækifæra og jafnréttis á öllum sviðum. Anna Lára Steindal, framkvæmdastjóri Þroskahjálpar og Magga Dóra Ragnarsdóttir, stafrænn hönnunarleiðtogi Mennskrar ráðgjafar komu í þáttinn og sögðu okkur frá því um hvað verður rætt á þinginu og hvað ber helst að hafa í huga í þessum málum svo að tæknivædd framtíð og gervigreind geti nýst öllum. Tónlist í þættinum: Horfðu til himins / Nýdönsk (Daníel Ágúst Haraldsson og Jón Ólafsson) Farmaður hugsar heim / Ragnar Bjarnason og Elly Vilhjálms (lagið eftir Þórunni Franz og textinn eftir séra Árelíus Níelsson) One of these things first / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 16, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Saga björgunarskipsins Maríu Júlíu og fatlað fólk í tæknivæddri framtíð

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 16, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!