EPISODE · Feb 11, 2026 · 50 MIN
Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran
from Mannlegi þátturinn
Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina? Á viðburði sem haldinn var í síðustu viku af Rannsóknarsetri skapandi greina var leitast við að svara þessari spurningu. Og hvort hægt sé að rýna í hvernig skapandi starfsemi mótar samfélagslegar breytingar og hvort þær séu mælanlegar og hvert er gildi þeirra í samtímanum? Þorbjörg Daphne Hall, prófessor í tónlistarfræðum við LHÍ, og Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknaseturs skapandi greina komu í þáttinn og sögðu okkur frá. Hvernig vinnum við á fordómum? Það var yfirskriftin á hádegisfundi sem var í gær á vegum Geðhjálpar þar sem fjallað var um fordóma gagnvart andlegum áskorunum og niðurstöður úr nýrri rannsókn voru kynntar. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, var með erindi á hádegisfundinum kom í þáttinn og sagði okkur frá því sem þar kom fram. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í dag sagði hún okkur frá hlutverki Epstein-Barr veirunnar í myndun MS sjúkdómsins. Það var vissulega flókið en hún útskýrði það betur fyrir okkur í þættinum. Tónlist í þættinum í dag: Vorkvöld í Reykjavík / Ragnar Bjarnason (Evert Taube, texti Sigurður Þórarinsson) Bíólagið / Stuðmenn (Valgeir Guðjónsson og Egill Ólafsson) Brotin loforð / Bubbi Morthens (Bubbi Morthens) Heim í Búðardal / Lónlí blú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Samfélagsáhrif skapandi greina, að vinna á fordómum og Epstein-Barr veiran
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.