Samhjálp og ABC barnahjálp og Axel Finnur á Heilsuvaktinni episode artwork

EPISODE · Dec 16, 2025 · 50 MIN

Samhjálp og ABC barnahjálp og Axel Finnur á Heilsuvaktinni

from Mannlegi þátturinn

Við vorum á hjálparstarfsnótum í þættinum í dag. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Samhjálpar og Hrönn Svansdóttir framkvæmdastjóri ABC barnahjálpar komu til okkar. Við töluðum við þær um starfsemi Samhjálpar g ABC barnahjálpar, mikilvægi sjálfboðaliða og það hversu mikilvægt er að gefa af sér og kenna börnunum okkar samkennd. Svo var það Heilsuvaktin með Helgu Arnardóttur. Að þessu sinni ræddi Helga við Axel Finn Sigurðsson hjartalækni en þessi umfjöllun er miðuð að karlmönnum um og yfir fimmtugt. Axel ræddi þó í þetta sinn ekki um háþrýsting og ofþyngd sem auðvitað geta valdið kransæða- og hjartasjúkdómum heldur aðra þætti sem einnig hafa mikil áhrif þegar kemur að hjartaheilsu eins og t.d. félagsleg einangrun. Hann ræddi um svokallaða D-týpu karlmanna sem einangra sig gjarnan frá vinum og vandamönnum, miklu frekar en konur, og telja sig ekki hafa þörf fyrir þá, byrgja inni tilfinningar og vanlíðan, þjást mögulega af þunglyndi og leita í áfengi til að losa um streitu. Tónlist í þættinum í dag: Anda inn / Heimilistónar (Katla Margrét Þorgeirsdóttir) Ég þarf enga gjöf í ár / Lón (Ásgeir Aðalsteinsson, Ómar Guðjónsson og Valdimar Guðmundsson) I’ll be Home for Christmas / Dean Martin & Scarlett Johansson (Ram, Gannon & Kent) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Dec 16, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Samhjálp og ABC barnahjálp og Axel Finnur á Heilsuvaktinni

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on December 16, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!