Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Feb 23, 2026 · 50 MIN

Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Það virðist vera sem gufu- eða gusuæði sé runnið á Íslendinga. Framundan er ferðalag sem farið verður í maí og þemað í þessari ferð eru sánur og það verður farið til Eistlands, Lettlands og Finlands og þar verða allskonar mismunandi sánumeðferðir, t.d. með nuddi og dekri inni í sánunum. Leifur Wilberg Orrason og Jura Aku hafa verið að gusa saman í Sækoti, þar sem þau hafa haldið sánagusur. Við ræddum um sánur, gusur, fargufur og alla þessa sánumenningu sem er að myndast á Íslandi. Helga Lára Þorsteinsdóttir safnstjóri RÚV emur til okkar annan hvern mánudag með gullmola af safni RÚV. Í tilefni þess að í gær var konudagurinn haldinn hátíðlegur dró Helga Lára fram úr safninu stuttan fréttaauka sem var fluttur þann 30.júní árið 1950, eða fyrir 76 árum, þar sem ræddust við tvær merkilegar konur; fréttakonan Margrét Indriðadóttir og Margrét Tryggvadóttir húsmóðir. Þar segir frá orlofsferð húsmæðra úr Vestur Húnavatnssýslu um Suðurland. Svo var Örn Úlfar Sævarsson texta- og hugmyndasmiður og spurningahöfundur, lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn. Hann sagði okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Örn Úlfar talaði um eftirfarandi bækur og/eða höfunda: Jötunsteinn e. Andra Snæ Magnason Vegur allrar veraldar e. Sigríði Hagalín Passíusálmarnir e. Hallgrím Pétursson Tónlist í þættinum í dag Leikur að vonum / Ólafur Þórarinsson (Ólafur Þórarinsson, texti Jónas Friðrik) Regndropar falla við hvert fet/ Engilbert Jensen (Burt Bacharah, texti Þorsteinn Eggertsson) 1970 Dúddi rádd'okkur heilt / Stuðmenn og Eggert Þorleifsson (Egill Ólafsson, Sigurður Bjóla Garðarsson og Valgeir Guðjónsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 23, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Sánusafarí til Eistrasalts, húsmæðraferð frá 1950 og Örn Úlfar lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 23, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!