Senjóríturnar, vinkill og Jens Pétur lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Oct 28, 2024 · 53 MIN

Senjóríturnar, vinkill og Jens Pétur lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Kór eldri kvenna, Senjóríturnar, varð til sem afsprengi út frá Kvennakór Reykjavíkur fyrir nokkrum árum og Senjóríturnar voru síðan formlega stofnaðar 2015. Þær hafa reglulega haldið tónleika, tekið þátt í kóramótum og farið í söngferðalög. Það er mikill metnaður í starfi Senjórítanna og á undanförnum árum hafa þær leitað í smiðju þekktra söngvara. Meðal þeirra sem hafa sungið með kórnum eru Raggi Bjarna heitinn, Bragi Valdimar Skúlason í Baggalúti og Bubbi Morthens. Kórinn lagði af stað í enn eina kórferðina fyrir helgi og þær eru komnar til Norður-Írlands á kóramót. Við hittum þær á lokaæfingunni hér heima í Digraneskirkju og það var mikil stemmning og tilhlökkun í hópnum. Rætt var við Unni Ragnars, Ragnheiði Sigurðardóttur, Hildi Bjarnadóttur, Sigrúnu Klöru Hannesdóttur, Silju Aðalsteinsdóttur, Ágota Joó og Vilberg Viggósson. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni í dag. Vinkill dagsins fjallaði að þessu sinni um breytingar á högum fólks þegar nútíminn ríður í hlað, við fengum tilvitnun frá rithöfundinum Helga Valtýssyni og rætt var um neftóbaksfræði sem svo eru kölluð; eða þjóðlegan fróðleik og reyndum að átta okkur aðeins á hvað hugtakið felur í sér. Og að lokum var það lesandi vikunnar. Í þetta sinn var það Jens Pétur Kjærnested, íslenskufræðingur og íslenskukennari. Við fengum að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og svo hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Jens Pétur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: The Empusium (A Health Resort Horror Story) e. Olgu Tokarczuk Grief is the Thing with Feathers e. Max Porter Os Meses os Dias, Um a Um. (Mánuður, Dagar, hver á eftir öðrum) e. Eugénio de Andrade Undir Eplatrénu e. Olav H. Hauge Skýin eru skuggar e. Jon Fosse Gleðileikurinn guðdómlegi e. Dante Alighieri og ævisögu Dante sem heitir Dante: a Life e. Alessandro Barbero Dantes Bone´s e. Gay Raffa þýðingar (og endurútgáfur) Guðbergs Bergssonar á bókmenntum spænskumælandi landa Ingibjörg Haralds og þýðingar hennar úr rússnesku Friðrik Rafnsson og Milan Kundera Pétur Gunnars og Madame Bovary Mánasteinn e. Sjón Tónlistin í þættinum Bíddu pabbi / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Peter Callander og Geoff Stevens, texti Iðunn Steinsdóttir) Orðin mín / Senjóríturnar (Bragi Valdimar Skúlason) I’m a Believer / The Monkees (Neil Diamond) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 28, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Senjóríturnar, vinkill og Jens Pétur lesandi vikunnar

0:00 53:43

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 28, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!