Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur episode artwork

EPISODE · Nov 8, 2024 · 50 MIN

Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgesturinn okkar í þetta sinn var Sigrún Eðvaldsdóttir fiðluleikari og konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Sigrún hóf fiðlunám 5 ára gömul hjá Gígju Jóhannsdóttur en lauk einleikaraprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1984 undir handleiðslu Guðnýjar Guðmundsdóttur og lauk bakkalárprófi frá Curtis tónlistarháskólanum í Philadelphiu í Bandaríkjunum 1988. Hún hefur tekið þátt í fjölda alþjóðlegra fiðlukeppna; varð í öðru sæti í Leopold Mozart keppninni árið 1987, hlaut bronsverðlaun í Síbelíusar-keppninni árið 1990 og önnur verðlaun í Carl Flesch keppninni árið 1992. Sama ár hlaut hún bjartsýnisverðlaun Brøste. Hennar er getið sem eins af áhugaverðustu fiðluleikurum framtíðarinnar í bók Henry Roth og hún hefur gegnt stöðu 1. konsertmeistara Sinfóníuhljómsveitar Íslands frá árinu 1998 og sama ár var hún sæmd Riddarakrossi hinnar íslensku Fálkaorðu fyrir störf sín á sviði tónlistar. Við fórum með Sigrúnu aftur í tímann á æskuslóðirnar í Garðabæ og hún sagði okkur hvenær fiðlan kom inn í hennar líf, hún talaði um námið og keppnisskapið og frá erfiðri reynslu þegar hún handleggsbrotnaði í Svíþjóð árið 2022. Í matarspjalli dagsins með Sigurlaugu Margréti töluðum við aðeins meira um færeysku matreiðslubókina og þær athugasemdir sem komu frá glöggum hlustendum í kjölfarið og svo töluðum við um kjötbollur og kalkúnahakk. Tónlist í þættinum Óvissan / Guðmundur Rafnkell Gíslason (Björn Hafþór Guðmundsson) Minning / Sigrún Eðvaldsdóttir og Selma Guðmundsdóttir (Þórarinn Guðmundsson) Schindler’s List meginstef / Sinfóníuhljómsveit Íslands, Sigrún Eðvaldsdóttir (John Williams höfundur, stjórnandi Daníel Bjarnason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Nov 8, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Sigrún Eðvaldsdóttir föstudagsgestur og matarspjall um kjötbollur

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on November 8, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!