Sigrún Jónsdóttir söngkona, vinkill og Örn lesandinn episode artwork

EPISODE · Mar 25, 2024 · 50 MIN

Sigrún Jónsdóttir söngkona, vinkill og Örn lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Mannlegi þátturinn hefur nýtt sér viskubrunn Jónatans Garðarssonar reglulega, því hann veit eiginlega allt um sögu íslenskrar dægurtónlistar, síðast kom hann og sagði okkur frá Berta Möller. Við fengum afskaplega góð viðbrögð frá hlustendum við því og í dag fengum við því Jónatan til að segja okkur frá Sigrúnu Jónsdóttur dægurlagasöngkonu, en hún var um tíma ein vinsælasta söngkona landsins og við heyrðum líka tvö lög með henni. Við fengum svo vinkil nr. 78 frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr Flóanum. Vinkill dagsins fjallaði um hvernig ein mynd getur orðið að 1505 orðum, um tóbaksræktun í Kentucky fylki í Bandaríkjum Norður- Ameríku, um veruleika landbúnaðarverkamanna frá Nicaragua sem vinna tímabundið þar og um fíkn jarðarbúa í afurðir tóbaksplöntunnar; Nico-tiana taba-cum. Og lesandi vikunnar í þetta sinn var leikarinn, söngvarinn og leiðsögumaðurinn Örn Árnason. Hann þarf auðvitað vart að kynna eftir öll árin í Spaugstofunni, sem Afi á Stöð 2 og svo auðvitað allt annað sem hann hefur leikið á sviði og fyrir framan myndavélarnar. Ég man þá tíð er nafn á tónleikum þar sem hann og Jónas Þórir píanóleikari munu spila og syngja lög sem allir þekkja í Salnum í Kópavogi. En auðvitað sagði hann okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa udnanfarið. Örn talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Gönguleiðir á Reykjanesi e. Jónas Guðmundsson Gönguleiðir á hálendinu e. Jónas Gumundsson Kvæðasafn Einars Benediktssonar Tónlist í þættinum: Bimbó / Sigrún Jónsdóttir og öskubuskur (Rodney Morris og texti Guðmundur Sigurðsson) Fjórir kátir þrestir / Sigrún Jónsdóttir með Kjell Karlson (Norskt alþýðulag, texti Jón Sigurðsson) Io i Te / Emiliana Torrini (Leone Tinganelli) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 25, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Sigrún Jónsdóttir söngkona, vinkill og Örn lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 25, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!