Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu episode artwork

EPISODE · Apr 4, 2025 · 52 MIN

Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Silja Bára R. Ómarsdóttir, nýkjörinn rektor Háskóla Íslands. Silja á langan akademískan feril að baki í stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmálum. Flestir þekkja hana sem sérfræðing í bandarískum stjórnmálum og alþjóðamálum og er hún tíður gestur í fjölmiðlum fyrir kosningar úti í heimi. Silja tók BA próf og MA gráðu í Bandaríkjunum en þegar hún var í doktorsnámi í Californiu gerðist alvarlegt atvik í hennar lífi sem hafði mikil áhrif á hana og varð til þess að hún flutti til Íslands og seinkaði doktorsgráðunni sem hún tók þó síðar á Írlandi. Silja sagði okkur frá því og öðru sem hefur mótað hana eins og uppvextinum í Ólafsfirði, bókum sem hún las í æsku og kennslu sem hún segist hafa mikla ánægju af. Hún sagði okkur líka hvernig hún vill sjá Háskóla Íslands fyrir sér sem næsti rektor, en hún tekur við embættinu 1.júlí næstkomandi. Svo var það matarspjallið, Sigurlaug Margrét var stödd við landamæri Spánar og Frakklands og hún ákvað því að tala um matvöruverslanir þar og erlendis yfir höfuð. Á ferðalögum getur verið mjög gaman og að minnsta kosti áhugavert að fara í matvöruverslanir og sjá aðrar vörur en við erum vön hér úti í búð. Sem sagt matvöruverslanir erlendis í matarspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Heim í Búðardal / Ðe lónlí bú bojs (Gunnar Þórðarson, texti Þorsteinn Eggertsson) Purple Rain / Prince (Prince) Just a Girl / No Doubt (Gwen Stefani & Tom Dumont) UMSJÓN HELGA ARNARDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 4, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Silja Bára föstudagsgestur og matvöruverslanir erlendis í matarspjallinu

0:00 52:52

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 4, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!