EPISODE · Jan 20, 2025 · 50 MIN
Símennt, Fjármálin á mannamáli og Guðjón Friðriksson lesandi vikunnar
from Mannlegi þátturinn
Símennt eru samtök fræðslu- og símenntunarmiðstöðva, en 11 símenntunarmiðstöðvar um allt land eiga aðild að samtökunum. Mikilvægt er að vinna að símenntun og framhaldsfræðslu á Íslandi þar sem lögð er áhersla á að efla þekkingu og hæfni einstaklingsins. Það er margt í boði fyrir fólk sem hefur t.d. hætt framhaldsskólanámi og vill bæta við sig, þá er í boði raunfærnismat sem hægt er að fá metna reynslu af vinnumarkaði. Við töluðum við Guðjónínu Sæmundsdóttur forstöðukonu miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum, hún er einnig formaður heildarsamtakanna. Eftir áramót byrjuðum við með það sem við köllum Fjármálin á mannamáli, þar sem Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í fjármálum heimilanna, fræðir okkur um ýmsar hliðar á fjármálunum. Í dag sagði hann okkur frá áhugaverðri rannsókn frá Danmörku, þar sem kemur fram að danskir ellilífeyrisþæegar nýti sér afar lítið af ævisparnaði sínum á efri árum. Lesandi vikunnar í þetta sinn var Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur og rithöfundur. Hann sendi frá sér tvær stórar og miklar bækur á síðasta ári. Annars vegar Rauði krossinn á Íslandi - hundrað ára saga og hins vegar Börn í Reykjavík. Við spurðum hann aðeins út í þessar bækur og fengum svo auðvitað að vita hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Guðjón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Móðurást e. Kristínu Ómarsdóttur Himintungl yfir heimsins ystu brún e. Jón Kalman Stefánsson Jörundur hundadagakonungur e. Sarah Bakewell Sögur Jóns Trausta, t.d. Anna frá Stóruborg, Sögur úr Skaftáreldum Tónlist í þættinum: January / Pilot (David Paton) June in January / Dean Martin (Ralph Rainger og Leo Robin) January / Elton John (Elton John & Bernie Taupin) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Símennt, Fjármálin á mannamáli og Guðjón Friðriksson lesandi vikunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.