Sjúkást og jafnvægi, vannæring eldra fólks episode artwork

EPISODE · Mar 20, 2024 · 53 MIN

Sjúkást og jafnvægi, vannæring eldra fólks

from Mannlegi þátturinn

Sjúkást er fræðslu- og forvarnarverkefni gegn kynferðisofbeldi á vegum Stígamóta. Í árlegri herferð sem fór af stað í vikunni er verið að velta fyrir sér jafnvæginu í samskiptum og því sem getur raskað því. Til dæmis aldursmunur, líkamlegur styrkur, frægð, æsingur, vinsældir, hræðsla, skert meðvitund og fleira. Svandís Anna Sigurðardóttir, verkefnastýra fræðslu og forvarna hjá Stígamótum, kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá Sjúkást, jafnvægi og spjallinu Sjúktspjall á www.sjukast.is þar sem hægt er að senda inn nafnlausar spurningar. Vannæring, eða áhætta á vannæringu, er algengt vandamál hjá eldra fólki. Algengi vannæringar eða áhætta á vannæringu er há hjá eldra fólki sem dvelst á sjúkrahúsi og eftir útskrift versnar oft næringarástand þess. Nú í janúar varði Berglind Soffía Ásbjörnsdóttir Blöndal doktorsritgerð sína í næringarfræði við Matvæla- og næringarfræðideild Háskóla Íslands. Í ritgerðinni rannsakaði hún tvo hópa, 65 ára og eldri, sem voru að útskrifast heim frá Landspítala og voru í áhættu á vannæringu. Öðrum hópnum veitti hún næringarmeðferð og frítt orku- og próteinbætt fæði ásamt næringardrykkjum í 6 mánuði eftir útskrift. Hinn hópurinn fékk ekki slíka aðstoð og niðurstöðurnar eru sláandi. Berglind kom til okkar í dag. Tónlist í þættinum: Vonarströnd / Íkorni (Stefán Örn Gunnlaugsson) Saturday Sun / Nick Drake (Nick Drake) Aquarius / The Fifth Dimension (Galt MacDermot, Gerome Ragni & James Rado) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 20, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Sjúkást og jafnvægi, vannæring eldra fólks

0:00 53:07

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 20, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!