Skaðaminnkunarverkefni RKÍ, Dagur heyrnar og veðrabrigði í veðurspjallinu episode artwork

EPISODE · Mar 4, 2025 · 50 MIN

Skaðaminnkunarverkefni RKÍ, Dagur heyrnar og veðrabrigði í veðurspjallinu

from Mannlegi þátturinn

Við fræddumst í dag um skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, Frú Ragnheiði og Ylju neyslurými. Sigríður Ella, teymisstjóri skaðaminnkunar- og félagsverkefna Rauða Krossins og Jónína Guðný Bogadóttir hjúkrunarfræðingar í skaðaminnkunarverkefnunum komu í þáttinn og fræddu okkur til dæmis um hugmyndafræði skaðaminnkunar, þau áhrif sem verkefnin hafa og þær ranghugmyndir sem gjarnan koma upp gagnvart skaðaminnkunarverkefnum. Dagur heyrnar var í gær og þema dagsins í ár er Breytt viðhorf, gættu réttinda þinna. Markmið dagsins er að vekja fólk til umhugsunar um eigin ábyrgð á heyrnaheilsu. Hildur Heimisdóttir kennsluráðgjafi Heyrnar- og talmeinastöðvar Íslands og í Hlíðaskóla, kom í þáttinn. Einar Sveinbjörnsson var svo hjá okkur í dag með veðurspjallið. Í dag talaði Einar um sjávarflóðin undanfarið og að í rauninni hafi heppnin verið með okkur að ekki fór verr, til dæmis með tilliti til sjávarborðshækkunar síðustu 70 árin. Svo eru að verða veðrabrigði, í dag ætti að vera síðasti dagurinn með rosaveðri. Einar sagði okkur frá þessu og fleiru í veðurspjalli dagsins. Tónlist í þættinum í dag: Lífsbókin / Bergþóra Árnadóttir (Bergþóra Árnadóttir, texti Laufey Jakobsdóttir) That’s What Friends are For / Dionne Warwick, Elton John, Gladys Knight og Stevie Wonder (Burt Bacharach & Carole Bayer Sager) Regndropar falla við hvert fet / Engilbert Jensen (Burt Bacharach, texti Þorsteinn Eggertsson) Nýfallið regn / Moses Hightower (Ásgeir Trausti Einarsson, texti Einar Georg Einarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 4, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Skaðaminnkunarverkefni RKÍ, Dagur heyrnar og veðrabrigði í veðurspjallinu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 4, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!