Skátahreyfingin, stytting menntaskólanámsins og móðurmálin episode artwork

EPISODE · Feb 22, 2024 · 50 MIN

Skátahreyfingin, stytting menntaskólanámsins og móðurmálin

from Mannlegi þátturinn

Þankadagurinn eða World Thinking Day er í dag og er dagur alþjóðlegrar vináttu þar sem skátar út um allan heim hugsa hlýtt til annarra skáta og senda þakklæti út í heiminn. Haldið hefur verið upp á þankadaginn á hverju ári síðan 1926. Harpa Ósk Valgeirsdóttir Skátahöfðingi Íslands og Kolbrún Ósk Pétursdóttir móttstjóri Landsmóts skáta komu í þáttinn í dag og sögðu okkur frá skátahreyfingunni, þankadeginum og landsmótinu sem verður haldið í sumar í fyrsta skipti í 8 ár en Covid setti strik í reikninginn því mótið er venjulega haldið á fjögurra ára fresti. Samkvæmt rannsókn við Háskóla Íslands hefur stytting framhaldsskólanámsins haft slæm áhrif á einkunnir ungmenna í háskóla, fjölda eininga teknum í háskóla og brotthvarf úr háskóla. Líklegra er að breytingin hafi haft slæm áhrif á drengi en stúlkur. Við fengum Tinnu Laufey Ásgeirsdóttur, prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands, sem er ein þeirra sem standa að þessari rannsókn til að segja okkur frekar frá niðurstöðum rannsóknarinnar. Í gær var Alþjóðlegi móðurmálsdagurinn og í tilefni hans er unnið svokallað Menningarmót með 6. bekkingum Hlíðarskóla. Börnin unnu verkefni tengd tungumálum, til dæmis var gerður tungumálaregnbogi þar sem orð á 20 tungumálum koma saman og fleira. Ferlinu lýkur á morgun þar sem foreldrum barnanna verður boðið á Menningarmót í Veröld og sjá það sem börn þeira hafa verið að gera. Kristín R. Vilhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi tungumálamiðlari í Danmörku og á Íslandi og höfundur Menningarmótsaðferðarinnar og Eyjólfur Már Sigurðsson forstöðumaður Tungumálasmiðstöðvar HÍ komu í þáttinn og sögðu frá. Tónlist í þættinum í dag: Sjóddu frekar egg / Bogomil Font (Bragi Valdimar Skúlason) Yakkety yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason) Gamla Húsið / Ellen Kristjánsdóttir (Þorgeir Ástvaldsson og Bjartmar Guðlaugsson) Mirror Mirror / Pinkerton Assorted Colours (Tony Newman) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 22, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Skátahreyfingin, stytting menntaskólanámsins og móðurmálin

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 22, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!