Skordýraprótein og Marche héraðið á Ítalíu episode artwork

EPISODE · Mar 5, 2024 · 50 MIN

Skordýraprótein og Marche héraðið á Ítalíu

from Mannlegi þátturinn

Við forvitnuðumst í dag um nýja próteingjafa á borð við skordýr og örþörunga, en markmiðið með því að nýta þá er að minnka umhverfisáhrif, draga úr sóun, vatnsnotkun og kolefnisspori í framleiðslu á matvörum fyrir fólk og fóðri fyrir dýr. Margrét Geirsdóttir, matvælafræðingur og verkefnastjóri hjá Matís, kemur í þáttinn og sagði okkur frá því hver þróunin er í þessum málum, meðal annars frá framleiðslu og nýtingu á skordýrapróteini, einfrumupróteini og örþörungum. Marche hérað er eitt best geymda leyndarmál Ítalíu segja margir. Þetta rólega og strjálbýla hérað liggur á milli Adríahafsins og öllu þekktari eru nágrannahéruð þess, Toskana og Umbria. Sumir segja að Marche sé eins og Toskana var fyrir 50 árum síðan, hrátt en undurfallegt. Ágústa Sigrún Ágústsdóttir mannauðsstjóri og leiðsögumaður kom til okkar í dag en þetta svæði er í miklu uppáhaldi hjá henni og hún heldur úti ferðasíðunni Flandrr.is. Tónlist í þættinum: Háa c / Moses Hightower (Andri Ólafsson, Daníel Friðrik Böðvarsson, Magnús Trygvason Eliassen og Steingrímur Teague) Ölduslóð / Svavar Knútur (Svavar Knútur) Scenes from an Italian Restaurant / Billy Joel (Billy Joel) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 5, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Skordýraprótein og Marche héraðið á Ítalíu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 5, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!