Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú episode artwork

EPISODE · Oct 24, 2024 · 50 MIN

Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú

from Mannlegi þátturinn

Við leitumst við að stunda líkamsrækt og hreyfingu til að halda líkamanum við, halda vöðvunum við, en skynfærin geta gleymst. Við fræddumst í dag um skynjun og skynfærin okkar. Berglind Indriðadóttir, iðjuþjálfi, stendur fyrir námskeiðinu Skynjun og skynörvun - leiðir að betri líðan notenda öldrunarþjónustu þar sem hún kennir leiðir til að halda skynfærunum við. Berglind fjallar um leiðir til þess að flétta örvun fyrir skynfærin inn í daglegar athafnir. Berglind var hjá okkur í dag og fór með okkur yfir það hvernig við getum örvað skynjun okkar og skynfærin. Georg Lúðvíksson er sérfræðingur í heimilisfjármálum og stofnandi Meniga sem sérhæfir sig í persónulegum fjármálum. Georg hefur haldið ógrynni námskeiða um mikilvægi þess að hafa fjármálin á hreinu og fjallað um heimilisbókhald, hvernig hægt er að halda eyðslunni í skefjum, borgað niður skuldir, hvernig lán á að taka osfrv. Við heyrðum í Georgi í dag, þegar heimilisbókhaldið hefur sjaldan skipt meira máli, enda hefur allt hækkað og vextir eru háir. Þegar Valgerður Jónsdóttir biskupsfrú (1771-1856) var borin til grafar voru þau orð látin falla að hún hefði verið í „öllu tilliti merkiskona“. Hún safnaði miklum auði, stóð í viðskiptum og var ein ríkasta kona Íslands á sínum tíma. Halldóra Kristinsdóttir starfar sem sérfræðingur á handritasafni Landsbókasafns Íslands – Háskólabókasafns sagði okkur nánar frá lífshlaupi Valgerðar í þættinum. Tónlistin í þættinum Með þér / Ragnheiður Gröndal (Bubbi Morthens) Í bláum skugga / Stuðmenn (Sigurður Bjóla Garðarsson) Let’s keep dancing / Emilíana Torrini (Emillíana Torrini og Simon Byrt) Ég fer á Land Rover frá Mývatni á Kópasker / Helgi Björnsson (Helgi Björnsson, Guðmundur Óskar Guðmundsson og Atli Bollason) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 24, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Skynjun og skynörvun, heimilisbókhaldið og Valgerður biskupsfrú

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 24, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!