EPISODE · Oct 31, 2024 · 50 MIN
Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról
from Mannlegi þátturinn
Hár blóðþrýstingur getur farið leynt og afleiðingarnar geta verið alvarlegar. Á laugardaginn er Slagdagurinn okkar og af því tilefni verður boðið uppá ókeypis blóðþrýstingsmælingu og ráðgjöf í Kringlunni og á Glerártorgi á Akureyri. Þórir Steingrímsson formaður Heilaheilla og Dr. Anna Bryndís Einarsdóttir, taugasérfræðingur, yfirlæknir Taugadeildar Landspítalans, komu í þáttinn og fræddu okkur um til dæmis merkin sem við verðum að vera vakandi um, sem gætu bent til þess að slag sé hafið, en þau eru S.L.A.G.: Sjóntruflanir, Lömun útlima, Andlitslömun og Glatað mál. Ef þessi merki eiga við hjá okkur skiptir öllu máli að hringja strax í 112 því hver mínúta er mikilvæg í að lágmarka afleiðingar heilablóðfalls. Ofbeldi virðist vera að færast í aukana hjá ungu fólki og veldur áhyggjum, hverjar eru orsakirnar og hvernig getum við brugðist við? Við fengum Soffíu Ámundadóttur, verkefnastjóra Menntafléttunnar og kennara, og Arnrúnu Maríu Magnúsdóttur, leikskólakennara í þáttinn í dag. En þær fræddu okkur um málstofu á vegum Menntafléttunnar sem ber yfirskriftina Ræðum um ofbeldi og lausnir.Soffía hefur rannsakað og fjallað um ofbeldi nemenda í meistararitgerð sinni og Arnrún María rekur eigið fyrirtæki, Samtalið fræðsla ekki hræðsla þar sem hún leggur áherslu á samtalið við börn, sem sagt að fræða en ekki hræða. Í lok þáttar glugguðum við í grein í norska ríkisútvarisins NRK, sem fjallar um hvernig kaffidrykkja getur haft áhrif á kólestrólmagn eða blóðfitu. Það er ekki sama hvernig kaffi við drekkum og hversu mikið af því. En olía í kaffi getur leitt til hækkaðs kólestrólmagns í líkamanum. Tónlist í þættinum Ferðabar / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) Reyndu aftur / Mannakorn (Magnús Eiríksson) Tíu dropar / Moses Hightower (Moses Hightower, texti Andri Ólafsson og Steingrímur Karl Teague) Kaffi til Brasilíu / Stephan Hilmarz og Milljónamæringarnir (Hillard & Miles, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Slagdagurinn okkar, fræðsla ekki hræðsla og kaffi og kólestról
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.