EPISODE · Feb 24, 2026 · 50 MIN
Snjallforrit gegn matarsóun, virkniþing fyrir eldra fólk og þýskir kvikmyndadagar
from Mannlegi þátturinn
Við kynntum okkur aðeins sprotafyrirtækið Humble í dag, þau hafa hannað smáforrit fyrir snjallsíma þar sem boðið er upp á mat sem annars færi til spillis á lækkuðu verði sem þá bæði býður notendum upp á ódýrari vöru og hjálpar til við að minnka matarsóun. Á einu ári tókst notendum appsins að koma í veg fyrir að 31 tonn af matvælum færu til spillis. Rósa S. Markúsdóttir og Hlynur Rafn Guðmundsson voru hjá okkur í dag og sögðu okkur betur frá forritinu og verkefninu. Við fræddumst svo um virkniþing í þágu eldra fólks í Kópavogi sem fer fram á morgun í Kórnum. Þar er verið að stuðla að félagslegri virkni eldra fólks í bæjarfélaginu. Hlín Sigþórsdóttir, verkefnastjóri velferðasviðs og Fríða Karen Gunnarsdóttir, vekefnastjóri Virkni og vellíðan hjá Kópavogsbæ, komu í þáttinn og sögðu okkur betur frá virkniþinginu. Bíó Paradís, í samstarfi við Goethe-Institut Dänemark, German Films og Þýska sendiráðið á Íslandi, standa fyrir Þýskum kvikmyndadögum í sextánda sinn. Þeir hefjast á föstudaginn og það kennir ýmissa grasa í dagskránni sem vert var að skoða með Ásu Baldursdóttur frá Bíó Paradís. Tónlist í þættinum í dag Áður oft ég hef arkað þennan veg / Haukur Morthens og hljómsveit Sigurd Jensen (erlent lag, texti Egill Bjarnason) Let go of Your Plans / Lukas Nelson & The Promise of the Real (Lukas Nelson) Ágústín / Sigrún Jónsdóttir (Åge Gerard, texti Jón Sigurðsson) Io E Te (Ég og þú) / Emilíana Torrini (Leone Tinganelli) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Snjallforrit gegn matarsóun, virkniþing fyrir eldra fólk og þýskir kvikmyndadagar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.