Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Mar 9, 2026 · 50 MIN

Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Guðrún Hálfdánardóttir, dagskrárgerðarkona hér á Rás kíkti til okkar í dag og sagði okkur frá þáttum sem hún hefur verið að gera, Sprengjan sem sprakk, sem segir áhugaverðar sögu og frásagnir tengdar hernámi Breta á fimmta áratug síðustu aldar, atburðir sem aldrei hafa liðið úr huga þeirra sem þá upplifðu. Hún segir okkur frá símtali sem hún fékk frá hlustanda, Erni Smith, 82gja ára og er búsettur í Hveragerði. Hann hafði mjög merkilega sögu að segja um sprengju sem hann og vinir hans fundu á sjötta áratugnum fyrir austan fjall. Við fengum að heyra brot úr viðtalinu við hann og Guðrún kom með brot úr sprengjunni sem Örn færði henni. Guðrún sagði okkur frekar frá þættinum og nýjum þáttum sem hún hefur einnig verið að vinna, enn um menntamálin, Kerfið, sem hefja göngu sína á Rás 1 á morgun, þriðjudaginn 10.mars. Svo var það enn einn gullmolinn af safni RÚV sem Helga Lára Þorsteinsdóttir, safnstjóri RÚV, deilir með okkur hér í þættinum annan hvern mánudag. Í þetta sinn var það viðtal Stefáns Jónssonar, frá 1968, við Kristleif Jónsson sem var fæddur 1899 og var brautryðjandi í vegagerð á Vestfjörðum. Helga sagði okkur betur frá viðtalinu og við heyrðum það í þættinum. Svo var það auðvitað lesandi vikunnar, í þetta sinn var það Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur, sem býr á Indlandi, en er á landinu til að fylgja eftir bók, Gáttir, sem kemur út á næstunni og því gripum við hann glóðvolgan og fengum hann til að segja okkur frá því hvaða bækur hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Benedikt talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Mother Mary Comes to Me e. Arundhati Roy Ghost Eye e. Amitav Ghosh Gabriel García Marquez: Hundrað ára einsemd Marcel Proust: Í leit að glötuðum tíma Rainer Maria Rilke: Minnisblöð Maltes Laurids Brigge Tónlist í þættinum: Við viljum lifa / Ríó tríó (Alberto, texti Helgi Pétursson) Angelía / Vilhjálmur Vilhjálmsson ( Meisel, texti Theódór Einarsson) Moist / PPCX UMSJÓN: GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 9, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Sprengjan sem sprakk, gullmoli frá 1968 um brautryðjanda og Benedikt lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 9, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!