Stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum, Nýrnafélagið og póstkort episode artwork

EPISODE · Oct 23, 2024 · 52 MIN

Stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum, Nýrnafélagið og póstkort

from Mannlegi þátturinn

Á föstudaginn fer fram málþing á vegum Mennta- og barnamálaráðuneytisins og Háskóla Íslands um hættuna á misnotkun gervigreindar og tækninýjuna til að brjóta kynferðislega á börnum. Með nýrri tækni blasir við nýr veruleiki sem vekur upp spurningar um það hvernig sé rétt að bregðast við. Sérfræðingar munu tala á málþinginu um það hvernig gervigreind og önnur stafræn tækni er misnotuð til að brjóta á börnum, hverjar birtingamyndir brotanna eru, hvernig tekist er á við slíkt og til hvaða forvarnaraðgerða er gripið. Páll Magnússon, sem starfar hjá fastanefnd Íslands í Genf og stýrir málþinginu, kom í þáttinn ásamt Regínu Jensdóttur, sérfræðingi í mannréttindum barna í Evrópu, en hún heldur erindi á þinginu. Við fræddumst um starfssemi Nýrnafélagsins í dag en markmið þess er meðal annars að styðja alla þá sem veikjast af langvinnum nýrnasjúkdómum og aðstandendur þeirra og að fræða almenning og sjúklinga um nýrnasjúkdóma, meðferð þeirra og félagsleg vandamál sem þeim fylgja. Helga Jóhanna Hallgrímsdóttir formaður Nýrnafélagsins kom í þáttinn. Svo fengum við póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og pólitíkin var til umfjöllunar í upphafi póstkortsins. Magnús sagði frá pólitík sem hann upplifði í ýmsum Evrópulöndum þar sem hann hefur búið. Í seinni hlutanum sagði hann frá athygliverðum rannsóknum bandarísks sagnfræðiprófessors sem hefur rannsakað svefnvenjur fólks á miðöldum. Hann komst að því að fyrir iðnbyltinguna svaf fólk svokölluðum tvífasa svefni. Það þýðir að það vaknaði eftir um það bil þriggja tíma svefn, vakti í tvo tíma og svaf svo aftur í þrjá til fjóra tíma. Tónlist í þættinum í dag: Fyrir þig / Dátar (Rúnar Gunnarsson, texti Þorsteinn Eggertsson) Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Ryðgaður dans / Valdimar (Valdimar Guðmundsson og Ásgeir Aðalsteinsson) Á æðruleysinu / KK (Kristján Kristjánsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 23, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Stafrænt kynferðisofbeldi gegn börnum, Nýrnafélagið og póstkort

0:00 52:29

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 23, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!