Starfsmótun, Öryggi í umferðinni og vísindaspjall um peptíð episode artwork

EPISODE · Mar 11, 2026 · 50 MIN

Starfsmótun, Öryggi í umferðinni og vísindaspjall um peptíð

from Mannlegi þátturinn

Án vafa sækjast flestir eftir vellíðan í starfi, en hvað er starfsmótun? Í örstuttu máli snýst starfsmótun um það hvernig hægt er að móta og aðlaga störf fólks að styrkleikum og áhugasviðum þeirra til að auka vellíðan þeirra í starfi. Sigrún Þorgeirsdóttir ráðgjafi gerði lokaverkefni um einmitt vellíðan í starfi og starfsmótun í meistaranámi sínu hjá HÍ og hún kom í þáttinn í dag og sagði okkur meira frá starfsmótun. Öryggi á okkar vegum er yfirskrift ráðstefnu sem fer fram á morgun í Hörpu á vegum VÍS þar sem þemað verður umferðaröryggi í víðu samhengi. Við fengum þá Guðmund Val Guðmundsson, framkvæmdastjóra þróunarsviðs hjá Vegagerðinni og Reyni Bjarna Egilsson, framkvæmdastjóra trygginga og tjóna hjá VÍS, til að koma og segja okkur frekar frá því sem þar verður rætt. En Guðmundur verður þar með erindi sem kallast Mat á öryggi þjóðvegakerfisins og erindi Reynis Bjarna ber titilinn Raunveruleikinn - Umferðaslys hjá VÍS. Svo var það vísindaspjallið með Eddu Olgudóttur. Í þetta sinn talaði hún um peptíð, sem hafa verið talsvert í fréttum undanfarið, einskonar tískubylgju þar sem áhrifavaldar hafa mælt með og notast við peptíð á einhvern hátt til að líta betur út. En það eru ekki allir sem vita hvað peptíð er og því útskýrði Edda það fyrir okkur í vísindaspjalli dagsins. Tónlist í þættinum: Uppboð / Valgeir Guðjónsson (Valgeir Guðjónsson, texti Jóhannes úr Kötlum) Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir) Spánskur dagger / Vilberg Pálsson (Vilberg Andri Pálsson) Léttur í lundu / Bítlavinafélagið (Karl Hermannsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 11, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Starfsmótun, Öryggi í umferðinni og vísindaspjall um peptíð

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 11, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!