Stockfish hátíðin, erfðamálin og María Anna lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Mar 31, 2025 · 50 MIN

Stockfish hátíðin, erfðamálin og María Anna lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Alþjóðlega kvikmynda- og bransahátíðin Stockfish 2025 fer fram dagana 3.–13. apríl í Bíó paradís og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá. Sýndar verða um 30 alþjóðlegar verðlaunamyndir, sem flestar hafa ekki verið sýndar hér á landi. Að auki verður ítalskt horn á dagskrá þar sem ítalskri kvikmyndagerð verður fagnað með mat og víni. Í ár verður ókeypis aðgangur inn á hátíðina en gestum verður gefinn möguleiki á að greiða það sem það hefur tök á að greiða ef áhugi er á að styrkja hátíðina. Við ræddum við Dögg Mósesdóttur framkvæmdastýru hátíðarinnar og Berg Bernburg, en kvikmynd hans Veðurskeytin er opnunarmynd hátíðarinnar og Íslandsfrumsýning. Það er mánudagur og því kom Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálum, til okkar í það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í dag talaði hann um erfðamálin, en þau brenna á mörgum og því miður hafa margar fjölskyldur lent í erfiðleikum þegar kemur að þeim. Hvað ber að hafa í huga, hvað ber að varast og fleira með Georgi í dag. Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var María Anna Þorsteinsdóttir, íslenskufræðingur, en hún var íslenskukennari, prófarkalesari, handritagrúskari og útgefandi. Við fengum að vita hvaða bækur hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. María Anna talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Morgun í Yemen e. Susan Abulowa Sporðdrekar e. Dag Hjartarson Eldri konur e. Evu Rún Snorradóttur Kvár e. Elias Rúni Nýja testamentið Tímarit Máls og menningar Grimms ævintýri og íslenskar þjóðsögur Tónlist í þættinum í dag: Saga farmannsins / Óðinn Valdimarsson (Marty Robbins, texti Jón Sigurðsson) Hvítu mávar / Helena Eyjólfsdóttir (Walter Lange, texti Björn Bragi Magnússon) Síðasta sjóferðin / Brimkló (Steve Goodman, texti Þorsteinn Eggertsson) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 31, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Stockfish hátíðin, erfðamálin og María Anna lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 31, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!