Stofnun ársins 2025, þjónandi forysta og vinnustaðasamskiptin episode artwork

EPISODE · Feb 5, 2026 · 50 MIN

Stofnun ársins 2025, þjónandi forysta og vinnustaðasamskiptin

from Mannlegi þátturinn

Á hverju ári er valin stofnun ársins á vegum og byggir valið á mannauðskönnun hjá starfsfólki stofnana ríkisins og vinnustaði Reykjavíkurborgar o.fl. tæplega 35.000 manns. Á sama degi og úrslitin eru kynnt fer fram málþing um mannauðsmál undir yfirskriftinni Virkni og vellíðan á vinnumarkaði og við fengum Kára Sigurðsson formann Sameykis, en Sameyki stendur fyrir báðum þessum viðburðum, og með honum kom Jakobína Þórðardóttir, deildarstjóri félagsdeildar Sameykis og þau sögðu okkur betur frá. Hvað einkennir góðan leiðtoga? Hvað er þjónandi forysta? Við tölðum við Skúla Ólafsson sóknarprest í Neskirkju og Sirrý Arnardóttur, stjórnendaþjálfara, fyrirlesara, rithöfund og fjölmiðlakonu, en þau standa saman að námskeiði sem kallast Framsækni og forysta - hámarkaðu árangur þinn í starfi og daglegu lífi. Við fengum þau til að svara þessum spurningum og fleirum í dag. Svo voru það mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni. Þrjá undanfarna fimmtudaga hefur hann talað um samskipti á vinnustaðnum. Öll komum við með mismunandi reynslu og bakgrunn í farteskinu inn á vinnustaðinn og það getur verið talsvert flókið að stilla saman strengina svo fólki líði vel og samskipti gangi vel fyrir sig. Í dag tók hann þetta saman og kláraði vinnustaðasamskiptin, að minnsta kosti í bili. Tónlist í þættinum í dag: Bláir fuglar - Grafík (Helgi Björnsson, Rafn Jónsson og Rúnar Þórisson) I Can See Clearly Now - Johnny Nash (lag eftir flytjanda). Down Under - Men at work (Colin Hay og R. Strykert) Meðan nóttin fellur á - Snæfríður Ingvarsdóttir og Memfismafían (Þorsteinn Einarsson og Bragi Valdimar Skúlason) UMSJÓN: HULDA G. GEIRSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 5, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Stofnun ársins 2025, þjónandi forysta og vinnustaðasamskiptin

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 5, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!