Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu episode artwork

EPISODE · Apr 15, 2026 · 50 MIN

Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu

from Mannlegi þátturinn

Stóri plokkdagurinn verður haldinn um allt land sunnudaginn 26. apríl. Dagurinn er orðinn fastur liður á vorin en hann var fyrst árið 2018. Tilgangurinn er að hvetja almenning, félagasamtök, fyrirtæki og sveitarfélög til að taka höndum saman og hreinsa nærumhverfið draga úr rusli í náttúrunni og vekja athygli á því að litlar aðgerðir margra geta skilað miklum árangri. Björn Skúlason forsetamaki mun setja daginn formlega og hefja opnunarplokkið og hann var hjá okkur í dag ásamt Jóni Karli Ólafssyni, fyrrum umdæmisstjóra Rótarý Ísland, en Rótarý hreyfingin skipuleggur daginn með aðstoð bakhjarla. Laugardaginn 9. maí verða haldnir tónleikar í Íþróttahúsinu Iðu á Selfossi þar sem Sinfóníuhljómsveit Suðurlands mun flytja verk Björgvins Þ. Valdimarssonar tónskálds og kórstjóra en þetta eru 70 ára afmælistónleikar hans og afmælisdagurinn er í dag. Á tónleikunum verða einsöngvarar og margir kórar sem starfa á Suðurlandi en Björgvin sjálfur er Selfyssingur í húð og hár og þar hófst tónlistarferill hans. Við spjölluðum við Björgvin í þættinum í dag. Svo kom Edda Olgudóttir til okkar í vísindaspjallið. En í dag fræddi hún okkur um muninn á körlum og konum þegar kemur að heilsufarskvillum tengdum offitu. Tónlist í þættinum í dag: Fólkið í blokkinni / Eggert Þorleifsson (Ólafur Haukur Símonarson) Undir dalanna sól / Álftagerðisbræður og karlakór Reykjvíkur(Björgvin Þ Valdimarsson, texti Hallgrímur Jónsson frá Ljárskógum) Það varst þú / Óskar Pétursson (Björgvin Þ Valdimarsson) Smooth Sailing / Horace Henderson and his Orchestra (Thompson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 15, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Stóri plokkdagurinn, Björgvin Valdimars sjötugur og vísindaspjallið með Eddu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 15, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!