Sundbíó í Hafnarfirði, kepptu á Ólympíuleikunum fyrir hálfri öld og ofsaveður rifjað upp episode artwork

EPISODE · Feb 3, 2026 · 50 MIN

Sundbíó í Hafnarfirði, kepptu á Ólympíuleikunum fyrir hálfri öld og ofsaveður rifjað upp

from Mannlegi þátturinn

Vetrarhátíð hefst í Hafnarfirði á fimmtudaginn og meðal viðburða er sundbíó þar sem hægt er að horfa á bíómyndina When Harry Met Sally í Sundhöll Hafnarfjarðar og þetta er ekki bara bíó því ungir og upprennandi leikarar fara á kreik í hlutverkum Harry og Sally, og djassband sér um að setja gesti í réttu stemninguna fyrir sýningu með því að leika djasslögin úr myndinni. Jón Agnar Ólason hjá RIFF og Iðunn Gígja Kristjánsdóttir, listrænn stjórnandi sundbíósins, komu í þáttinn í dag. Um þessar mundir eru liðin 50 ár frá því nokkrir íslenskir skíðakappar fóru á Ólympíuleikana í Innsbruch og kepptu í svigi og stórsvigi fyrir Íslands hönd. Þrír frá Akureyri og einn frá Ísafirði. Fjórmenningarnir urði miklir vinir og héldu sambandi alla tíð og í dag eru þeir tveir eftir, Árni Óðinsson og Tómas Leifsson og þeir félagar ætla að halda uppá tímamótin með því að fara á Ólympíuleikana á Ítalíu. Við spjölluðum við Árna og Tómas í þættinum í dag. Svo var að það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni, en í dag ræddi Einar fyrst aðeins um óvenjulegu tíðina undanfarið og einkum snjóleysið sunnan og vestanlands. En svo rifjaði Einar upp með okkur svakalegt óveður sem gekk yfir landið fyrir réttum 35 árum, s.s. 3.febrúar 1991. Það hefur til dæmis ekki orðið svona hvasst á höfuðborgarsvæðinu síðan og vantar bara talsvert upp á það. Við heyrðum brot af fréttaauka sem var í útvarpinu vegna óveðursins og Einar fór betur yfir þetta ofsaveður og afleiðingar þess. Í fréttaaukanum frá 1991 heyrðum við í Atla Rúnari Halldórssyni fréttamanni, Guðmundi Hafsteinssyni veðurfræðingi og fréttamönnunum Jóni Guðna Kristjánssyniog Karli Eskil Pálssyni. Tónlist í þættinum: Bíldudals grænar baunir / Jolli og Kóla (Valgeir Guðjónsson) Hoppsa bomm (á skíðum skemmti ég mér) / Helena Eyjólfs og Hljómsveit Ingimars Eydal (H. Meyer, texti Ásta Sigurðardóttir) It Had To Be You / Harry Connick Jr. ( I. Jones & Gus Kahn) Veðurglöggur / Spilverk þjóðanna (Spilverk þjóðanna) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 3, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Sundbíó í Hafnarfirði, kepptu á Ólympíuleikunum fyrir hálfri öld og ofsaveður rifjað upp

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 3, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!