EPISODE · Feb 17, 2026 · 50 MIN
Svifryksmengun, Mál og vald og veðurspjallið með Einari
from Mannlegi þátturinn
Svifrykið sem mælst hefur á höfuðborgarsvæðinu þessa dagana í froststillunum er mjög skaðlegt fyrir heilsu fólks. Það eykur tíðnina á hjartaáföllum og heilablóðföllum er krabbameinsvaldandi og í svifrykinu eru baneitraðar hárfínar agnir sem eru að berast inn í líkamann og valda heilsutjóni. Þetta er haft eftir Hjalta Má Björnssyni formanni félags lækna gegn umhverfisvá í viðtali á Vísi í gær. Hjalti kom í þáttinn í dag. Hvað er málfærni? Hvernig er að vera í viðkvæmri stöðu þegar kemur að málfærni? Og hvernig notar fólk málbeitingu og breytileika tungumálsins í sína þágu? Iris Edda Nowenstein, lektor í íslenskri málfræði og máltækni og talmeinafræðingur við Landspítalann kom til okkar í dag og sagði frá erindi sem hún kallar Mál og vald. Við fengum hana til að segja okkur betur frá því í þættinum. Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur kom svo í dag í veðurspjallið. Í framhaldi af viðtali okkar í gær við Andra Snæ Magnason, byrjaði Einar á því að setja stórar og illskiljanlegar tölur, sem Andri nefndi, um jöklaafkomu í samhengi. Svo er það hlýjasti janúar í sögu mælinga í Nuuk á Grænlandi, en á sama tíma kaldasti janúar í Danmörku. Það setti hann svo í samhengi við tíðina hér heima og snjóleysið sunnanlands í vetur. Í lokum sagði Einar frá breytingum framundan í veðrinu, snjókomuspá og sitthvað fleira. Tónlist í þættinum í dag: Einu sinni var / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Svavar Benediktsson, texti Kristján frá Djúpalæk) Ekki bíl / Hrekkjusvín (Valgeir Guðjónsson, texti Pétur Gunnarsson) Vor við flóann / Ragnar Bjarnason (Leon T. René, texti Jón Sigurðsson) Gamla gatan / Kvartett Reynis Sigurðssonar (Oddgeir Kristjánsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Svifryksmengun, Mál og vald og veðurspjallið með Einari
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.