Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi episode artwork

EPISODE · Mar 19, 2026 · 50 MIN

Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi

from Mannlegi þátturinn

Tannverndarvikan 2026 er einmitt þessa vikuna, Góð munnheilsa alla ævi er yfirskrift vikunnar í ár. Þó munnheilsa sé auðvitað mikilvæg á öllum stigum lífsins þá er í ár lögð sérstök áhersla á börn og ungmenni og áhrif nikótíns og koffíns á tennur og munnheilsu. Íris Þórsdóttir, tannlæknir í Vestmannaeyjum og nefndarmaður í Fræðslunefnd Tannlæknafélags Íslands kom í þáttinn í dag og sagði betur frá þessu og talaði einnig um munnþurrk hjá eldra fólki, sem getur komið til af margvíslegum orsökum en getur ýtt undir tannskemmdir. Gleym mér ei styrktarfélag var stofnað árið 2013 af þremur konum, Önnu Lísu Björnsdóttur, Þórunni Pálsdóttur og Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, en sameiginleg reynsla þeirra af missi á meðgöngu færði þær saman með það að markmiði að styðja betur við foreldra sem missa barn á meðgöngu, í fæðingu og fljótlega eftir hana. Félagið hefur stækkað á þessum árum sem eru liðin síðan en tilgangurinn er enn sá sami. Sigrún Kristínar Valsdóttir kom til okkar í dag og sagði okkur betur frá félaginu, áherslu á gamlar sorgir í samverustundum sem félagið hefur staðið fyrir, hópastarfið og fleira. Svo voru það Mannlegu samskiptin með Valdimari Þór Svavarssyni ráðgjafa. Í dag talaði Valdimar um meðvirkni og barnauppeldi. Þar var af nógu að taka. Tónlist í þættinum í dag: Lover Girl / Laufey (Laufey og Spencer Stewart) Eitt af blómunum / Benni Hemm Hemm og Páll Óskar (Benedikt Hermann Hermannsson og Páll Óskar Hjálmtýsson) Cairo vibe / Ásgeir Ásgeirsson (Ásgeir Ásgeirsson) Stúlkan / Todmobile (Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, texti Andrea Gylfadóttir) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 19, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Tannvernd og munnheilsa, samverustundir með gamlar sorgir og meðvirkni og barnauppeldi

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 19, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!