Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu episode artwork

EPISODE · Mar 4, 2026 · 50 MIN

Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu

from Mannlegi þátturinn

Hormónar, breytingaskeiðið, mataræði og ýmislegt fleira sem snýr að heilsu kvenna. Þorbjörg Hafsteinsdóttir hjúkrungarfræðingur og næringarþerapisti er komin til landsins og við spjölluðum við hana um þessi mikilvægu mál í dag. Fyrir ári greindist Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson athafnamaður á Akureyri með erfitt krabbamein í vélinda og hefur í kjölfarið þurft á aðgerð að halda, einu sinni í viku, til að halda fæðuvegi opnum. Þær aðgerðir voru framkvæmdar á sjúkrahúsinu á Akureyri en fyrir skemmstu hefur hann þurft að sækja þessa þjónustu til Reykjavíkur. Hann skrifaði nýlega grein í fjölmiðla þar sem hann setur spurningamerki við þessa löngu leið í aðgerðina og reiknaði út að árið 2024 færi fólk af landsbyggðinni 25-30 þúsund ferðir til höfuðborgarinnar til að sækja læknisþjónustu á Landspítalann og kostnaðurinn við það væri rúmur milljarður. Þorvaldur spyr hvort það borgi sig virkilega að Sjúkratryggingar, þ.a.l. ríkið og skattgreiðendur, greiði fyrir allar þessar ferðir til Reykjavíkur til að sækja þangað læknisþjónustu sem í mörgum tilvikum væri hægt að framkvæma á landsbyggðinni? Við ræddum við Þorvald Lúðvík í dag. Eva Olgudóttir kom í þáttinn með vísindaspjall sitt eins og undanfarna miðvikudaga. Í þetta sinn sagði hún okkur frá því hvaða áhrif krabbamein í æsku getur haft á fólk seinna meir í lífinu. Tónlist í þættinum Þú trumpar ekki ástina / Bogomil Font og Greiningardeildin (Bragi Valdimar Skúlason) Jag har det så travlt / Tina Dickow (Tina Dickow) Dont Blame It on That Girl / Matt Bianco (Mark Reilly & Mark Fisher) Harvest / Rufus Wainwright, Chris Stills og Andrew Bird (Neil Young) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 4, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Þorbjörg og breytingaskeiðið, Þorvaldur Lúðvík segir sína sögu og vísindaspjall Eddu

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 4, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!