EPISODE · Jan 30, 2026 · 50 MIN
Þorkell Gunnar föstudagsgestur og danskt matarspjall í tilefni leiksins
from Mannlegi þátturinn
Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson íþróttafréttamaður. Handboltinn er okkur ofarlega í huga í dag, enda ekki á hverjum degi sem íslenskt landslið kemst í undanúrslit á stórmóti, leikur við Dani í kvöld. En við spjölluðum líka við Þorkel um hvar hans rætur liggja, hans ferðalag í gegnum lífið, hvar hans vegferð hófst og hvernig hann endaði í starfi íþróttafréttamanns ungur að árum. Og auðvitað var talsvert talað um handboltann og leik kvöldsins, nema hvað? Í matarspjallinu með Sigurlaugu Margréti töluðum við, í tilefni leiksins við Dani, um danskann mat. Danskur matur og danskar matarhefðir hafa auðvitað haft talsverð áhrif á okkur hér á landi en ættum við jafnvel að forðast hann í dag, eða einmitt að borða hann og í framhaldinu að sporðrenna danska landsliðinu í eftirrétt? Det er spørgsmålet. Tónlist í þættinum: Bræðralag / Björgvin Halldórsson og Sigrún Hjálmtýsdóttir (Gunnar Þórðarson, texti Davíð Oddsson) Skref fyrir skref / Eyjólfur Kristjánsson (Eyjólfur Kristjánsson, texti Stefán Hilmarsson) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Þorkell Gunnar föstudagsgestur og danskt matarspjall í tilefni leiksins
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.