EPISODE · Nov 26, 2025 · 50 MIN
Þörungasmakk með Eydísi, Átak UN Women og jólahlaðborð á Króknum
from Mannlegi þátturinn
Hvernig má nýta betur matþörunga og aðra ofurfæðu fjörunnar? Flest þekkjum við söl og margir hafa bragðað þau en hvað annað úr fjörunni er hægt að nýta? Á morgun mun Eydís Mary Jónsdóttir, umhverfis- og auðlindafræðingur kynna ofurfæðuna sem finna má í fjöruborðinu og gefur gestum að smakka. Eydís kom í þáttinn í dag. UN Women á Íslandi standa fyrir árlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi og í ár er athyglinni beint að stafrænu ofbeldi gegn konum og stúlkum. Fyrir milljónir kvenna og stúlkna hefur sítengdur stafrænn heimur orðið vettvangur ofbeldis, netáreitni, ofsóknum á netinu, misnotkun á persónulegum upplýsingum, dreifingu myndefnis án samþykkis, djúpfalsmynda og upplýsingaóreiðu. Stella Samúelsdóttir framkvæmdastýra UN Women á Íslandi kom í þáttinn og sagði frá átakinu. Það eru ekki allir sem eiga þess kost að komast á jólahlaðborð, hvað þá með allri fjölskyldunni. Jólahlaðborð Rótarýklúbbs Sauðárkróks verður haldið næsta laugardag og það er ókeypis fyrir þau sem mæta. Rótarýklúbbur Sauðárkróks er með mörg járn í eldinum en þetta er stærsta einstaka verkefni klúbbsins á hverju ári. Rótarýfélagar sjá um allan undirbúning og framkvæmd sem er býsna mikið verkefni. Við heyrðum í Ómari Braga Stefánssyni frá Rotaryklúbbi Sauðárkróks í dag. Tónlist í þættinum í dag: Í rökkurró / Helena Eyjólfsdóttir (Nevins, Nevins & Dunn, texti Jón Sigurðsson) That’s What Friends Are For / Dionne Warwick & Friends (Burt Bacharach, Carole Bayer Sager) Lítill drengur / Vilhjálmur Vilhjálmsson (Magnús Kjartansson, texti Vilhjálmur Vilhjálmsson) Láttu mig gleyma / Stuðmenn (Egill Ólafsson, Þórður Árnason og Jakob Frímann Magnússon, texti Þórður Árnason) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Þörungasmakk með Eydísi, Átak UN Women og jólahlaðborð á Króknum
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.