Þorvaldur og staðan í jarðhræringum, fjármálin á mannamáli og Hjörtur lesandinn episode artwork

EPISODE · Apr 14, 2025 · 52 MIN

Þorvaldur og staðan í jarðhræringum, fjármálin á mannamáli og Hjörtur lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Aukin skjálftavirkni hefur mælst innan Ljósufjallakerfisins á Snæfellsnesi síðan 2021 og farið mjög vaxandi síðan í ágúst í fyrra. Mælingar benda til þess að upptök skjálftanna séu á 15 til 20 kílómetra dýpi. Svo er það Reykjanesið, aflögunargögn sýna skýrt merki um að landris haldi áfram undir Svartsengi. Landris mælist nú hraðara en eftir síðustu eldgos. Og svo hefur töluverð jarðskjálftahrina verið í gangi frá því í fyrradag um 14 kílómetra VestNorðvestan við Húsavík. Þorvaldur Þórðarsson prófessor í bergfræði og eldfjallafræði kom í þáttinn í dag og fór yfir stöðuna. Það er mánudagur þannig að Georg Lúðvíksson, sérfræðingur í heimilisfjármálunum, kom til okkar í það sem við köllum fjármálin á mannamáli. Í dag talaði hann um það sem hefur tekið mikið pláss í fréttum undanfarið, þ.e. tollastríðið og sveiflurnar á hlutabréfamörkuðum, hvernig þetta allt saman snertir við hinum almenna borgara. Svo var það lesandi vikunnar sem í þetta sinn var leikarinn Hjörtur Jóhann Jónsson. Hann leikur þessa dagana í verkinu Fjallabak í Borgarleikhúsinu. En hann var auðvitað kominn í þáttinn til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Hjörtur Jón talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Farm Boys e. Will Fellows For Whom the Bell Tolls e. Ernest Hemingway Murderbot Diaries e. Martha Wells Giovannis Room e. James Baldwin Robinson Cruseo e. Daniel Dafoe Tónlist í þættinum í dag: Söngur um lífið / Rúnar Júlíusson (lagahöfundur óþekktur, texti Þorsteinn Eggertsson) Yakkety yak smacketty smack / Change (Jóhann Helgason) Don’t Stop / Fleetwood Mac (Christine McVie) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Apr 14, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Þorvaldur og staðan í jarðhræringum, fjármálin á mannamáli og Hjörtur lesandinn

0:00 52:51

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 52 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on April 14, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!