Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar episode artwork

EPISODE · Mar 16, 2026 · 50 MIN

Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar

from Mannlegi þátturinn

Við fórum á Þjóðskjalasafnið og hittum Indriða Svavar Sigurðsson skjalavörð og hann sagði okkur afar merkilega sögu. Hann hafði heyrt að langafi hans hafi veirð einn 9 manna sem urðu fyrir eldingu við bæinn Auðnar á Vatnsleysuströnd 16. mars árið 1865. Þessi viðburður hafði vakið mikla athygli á sínum tíma og Indriði, verandi skjalavörður, hóf að leita að heimildum á safninu. Hann fann nokkrar frumheimildir um þetta undarlega og voðalega slys, þar á meðal skýrslu sem Jón Hjaltalín landlæknir skrifaði og sendi heilbrigðisyfirvöldum í Danmörku. Við heyrðum meira um þessa ótrúlegu sögu í þættinum í dag. Rabbarbarinn á uppruna sinn í Kína og hefur því ferðast langa leið áður en hann festi rætur í íslenskum görðum sem fjölært nytjagrænmeti. En getum við hugsanlega nýtt þessa áhugaverðu plöntu betur? Við veltum því fyrir okkur í dag með Björk Bjarnadóttur, umhverfis- þjóðfræðingi, en hún heldur einmitt erindi um það í Fróðleikskaffi á Borgarbókasafninu Árbæ í dag. Lesandi vikunnar var Dóra Lena Christians verslunarstjóri í Bóksölu stúdenta og meistaranámsnemi í almennri bókmenntafræði. Hún er nýkomin aftur til landsins eftir að hafa sótt stóru bókamessuna í London. Við fengum hana til að segja okkur aðeins frá því en svo auðvitað líka þeim bókum sem hún hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hana í gegnum tíðina. Tónlist í þættinum: Meiriháttar / Rósa Guðrún Sveinsdóttir (Rósa Guðrún Sveinsdóttir) Í dansi með þér / Ingibjörg Þorbergs, Marzbræður og Kvartett Jans Morávek (Pablo Beltran Ruiz, texti Þorsteinn Sveinsson) And I love her / The Beatles (Lennon & McCartney) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 16, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Þrumu lostnir 1865, nýting á rabbarbara og Dóra Lena lesandi vikunnar

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 16, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!