Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall episode artwork

EPISODE · Jan 24, 2025 · 50 MIN

Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Tinna Hrafnsdóttir, leikstjóri, leikkona handritshöfundur og framleiðandi. Hún er annar leikstjóra sjónvarpsþáttanna um Vigdísi Finnbogadóttur, hún gerði kvikmyndina Skjálfta upp úr bók Auðar Jónsdóttur, hún leikstýrði sjónvarpsþáttunum Heima er best auk þess að skrifa handritið ásamt tveimur öðrum og hún hefur leikið í fjölda verkefna á sviði og fyrir framan myndavélina. Við fórum með Tinnu aftur í tímann, á æskuslóðirnar og svo á handahlaupum í gegnum lífið til dagsins í dag. Svo var það matarspjallið með Sigurlaugu Margréti, sem auðvitað var á sínum stað í dag eins og aðra föstudaga. Í dag er bóndadagur, fyrsti dagur í þorra, og það er þorramaturinn sem verður umræðuefnið í dag. Íslenski þorramaturinn komst á alþjóðlegan lista sem er ekki endilega listinn til að vera á, sem við skoðuðum aðeins. Sviðakjammi, sviðasulta, rófustappa, súrir hrútspungar og allt þetta góðgæti sem við elskum en vekja jafnvel furðu hjá öðrum þjóðum. Tónlist í þættinum: Okkar eigin Osló / Valdimar Guðmundsson og Memfismafían (Helgi Svavar Helgason, texti Bragi Valdimar Skúlason) Af því að pabbi vildi það / Jonee Jonee (Jonee Jonee) Morning has Broken / Cat Stevens (Cat Stevens & Eleanor Farjeon) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 24, 2025

Embed this episode

NOW PLAYING

Tinna Hrafnsdóttir föstudagsgestur og þorramatarspjall

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 24, 2025.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!