Tónskáldið Gunnar Þórðarson, póstkort um flugvelli og páskamatarspjall episode artwork

EPISODE · Mar 27, 2024 · 50 MIN

Tónskáldið Gunnar Þórðarson, póstkort um flugvelli og páskamatarspjall

from Mannlegi þátturinn

Um páskana verður sýnd í sjónvarpinu heimildarmyndin Tónskáldið Gunnar Þórðarson. Þetta er ný heimildarmynd í tveimur hlutum eftir Ágúst Guðmundsson og Jón Þór Hannesson um ævintýralegan feril Gunnars Þórðarsonar. Gunnar Þórðarson hefur fengist við margs konar dægurtónlist, allt frá lögum í anda Bítlanna til diskótónlistar og undir lok ferilsins fóru eyru hans að opnast fyrir sígildri tónlist og óperan hans Ragnheiður sló í gegn ekki síður en sönglög hans sem mörg hver eru löngu orðin sígild meðal þjóðarinnar. Ágúst Guðmundsson var í hljóðveri RÚVAK á Akureyri og sagði okkur frá tilurð myndarinnar og auðvitað frá ferli Gunnars. Við fengum svo póstkort frá Magnúsi R. Einarssyni í dag og í korti dagsins hélt Magnús áfram að kvarta undan flugstöðvum, en hann er nú nýkominn úr ferð til þriggja landa og í gegnum fjórar flugstöðvar. Af þeim fjórum þótti honum sú í Noregi erfiðust. Hann rekur upphaf leiðinda á flugstöðvum til ellefta septembers 2001 en eftir árásina á tvíburaturnna í Bandaríkjunum þann dag var allt eftirlit á flugvöllum hert um heilan helling út um allan heim. Hann sagði líka frá hefndarstríðinu sem hófst eftir árásina en í því fórust fjórar og hálf milljónir. Svo var það páskamatarspjall. Sigurlaug Margrét var auðvitað með okkur og við skoðuðum páskamatinn, pásklamb og hamborgarhrygg og morgunmatinn um páskana. Tónlist í þættinum: Manitoba / Gunnar Þórðarsson (Gunnar Þórðarsson) Þakka þér fyrir / Stefán Hilmarsson (Gunnar Þórðarsson-Stefán Hilmarsson) Egg head / Al Stewart (Cecil Payne & Daniel Mendelssohn) Páskaegg / Ingibjörg Þorbergs og hljómsveit Carls Billich (Ingibjörg Þorbergs) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Mar 27, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Tónskáldið Gunnar Þórðarson, póstkort um flugvelli og páskamatarspjall

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on March 27, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!