TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið episode artwork

EPISODE · Oct 29, 2024 · 50 MIN

TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið

from Mannlegi þátturinn

TRE (Tension, Stress & Trauma Release) er ný leið sem ætlað er að hjálpa líkamanum að losa um spennu, streitu og áföll sem liggja djúpt í vöðvum líkamans. Leiðin er þróuð af Dr. David Berceli til að virkja náttúruleg viðbrögð líkamans á öruggan hátt með því að leyfa líkamanum að skjálfa eða titra þannig að losni um vöðvaspennu og taugakerfið róist. TRE getur einnig verið hjálpleg leið til að losa um daglega streitu og spennu vegna langvarandi álags, veikinda eða áfalla. Svava Brooks Svanhildardóttir kom í þáttinn og fræddi okkur um TRE. Þann 24. október á hverju ári er Alþjóðadagur Polio, eða lömunarveiki. Lömunarveiki er mjög smitandi veirusjúkdómur, sem getur leitt til lömunar og dauða. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO) lýsti því yfir árið 1988, að stefna yrði að útrýmingu lömunarveiki í heiminum. Síðan þá hefur smitum lömunarveiki fækkað um 99% á heimsvísu og 3 milljarðar barna hafa verið bólusett. Enn hefur þó ekki tekist að uppræta þessa veiru að fullu og til dæmis komu nýlega upp tilfelli á Gaza þar sem ekki hefur náðst að klára bólusetningu barna vegna árása Ísraelshers. Jón Karl Ólafsson, umdæmisstjóri Rótarý á Íslandi, kom í þáttinn í dag, en Rótarýhreyfingin hefur unnið að útrýmingu lömunarveiki ásamt Aþjóðaheilbrigðisstofnuninni og fleiri samstarfsaðilum. Svo var það veðurspjallið með Einari Sveinbjörnssyni. Það stefnir í að október verði þriðji kaldi mánuðinn í röð hér á landi. Langtímahorfur inn í nóvember hafa breyst síðustu daga og útlit er fyrir talsverðar breytingar í veðri frá og með helginni. Svo hélt Einar áfram að fræða okkur um veðurstöðvar landsins, en í dag sagði hann okkur frá eldri veðurstöðvum í vitum landsins, einkum Galtavita og Hornbjargsvita. Um miðja síðustu öld gegndu nærri 10 vitaverðir einnig starfi veðurathugnarmanna. Og að lokum sagði Einar okkur frá mikilvægi veðurskeyta fyrir fiskveiðar og alþjóðasiglingar við landið. Tónlistin í þættinum Í rökkurró (Manstu ekki vinur) / Helena Eyjólfsdóttir (B. Rau, A. Nevins, Morton Nevins, texti Jón Sigurðsson) Allt í gúddí / Ólöf Arnalds (Ólöf Arnalds) Vetur / Egill Ólafsson (Egill Ólafsson) En elsker i Berlin / Kari Bremnes (Kari Bremnes) UMSJÓN GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Oct 29, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

TRE spennulosun, lömunarveiki og veðurspjallið

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on October 29, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!