EPISODE · Mar 2, 2026 · 54 MIN
Um Vargfélagið af Þjóðskjalasafninu og Óttarr Proppé lesandi vikunnar
from Mannlegi þátturinn
Heimsókn á Þjóðskjalasafnið sem var fastur dagskrárliður í Samfélaginu eftir hádegi á Rás 1 er nú komin til okkar í Mannlega þáttinn. Annan hvern mánudag förum við í heimsókn á safnið og fáum að fræðast um áhugaverða hluti af safninu, þar er úr nógu að moða og gríðarlegt magn af áhugaverðu efni sem þau munu kynna fyrir okkur. Í dag hittum við skjalavörðinn Jón Torfa Arason sem blaðaði í gegnum vel gulnuð skjöl frá 19.öld þar sem verið er að fjalla um flugvarga og vargfélagið. Jón Torfi sagði okkur meira um það í dag. Lesandi vikunnar í Mannlega þættinum í þetta sinn var Óttarr Proppé. Óttarr hefur borið marga titla í gegnum tíðina, hann er fyrrverandi bóksali, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, fyrrverandi borgarfulltrúi, rokksöngvari, júróvisjónfari og margt fleira. En hann kom sjálfsögðu í þáttinn til að segja okkur frá því hvað hann hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Óttarr talaði um eftirfarandi bækur Taumhald á skepnum e. Magnus Mills Dyngja e. Sigrúnu Pálsdóttur Pálmavínsdrykkjumaðurinn e. Amos Tutuola Heyrt og séð erlendis - garðyrkjumaður segir frá e. Guðmundur Jónsson Haruki Murakami Tónlist í þættinum í dag: Veldu stjörnu / Ellen Kristjánsdóttir og John Grant (Ellen Kristjánsdóttir, texti Bragi Valdimar Skúlason) Poor Boy / Nick Drake (Nick Drake) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON
Embed this episode
NOW PLAYING
Um Vargfélagið af Þjóðskjalasafninu og Óttarr Proppé lesandi vikunnar
No transcript for this episode yet
Similar Episodes
No similar episodes found.