Unnur Birna Jónsdóttir Backman föstudagsgestur og vorþrá í matarspjallinu episode artwork

EPISODE · Feb 20, 2026 · 53 MIN

Unnur Birna Jónsdóttir Backman föstudagsgestur og vorþrá í matarspjallinu

from Mannlegi þátturinn

Föstudagsgestur Mannlega þáttarins í þetta sinn var Unnur Birna Jónsdóttir Backman leikkona. Hún leikur eitt af aðalhlutverkunum í nýrri íslenskri kvikmynd, Röskun, sem var frumsýnd í vikunni. Hún er svo gott sem alin upp í leikhúsinu, en móðir hennar var Edda Heiðrún Backman leikkona. Hún lék sitt fyrsta hlutverk í stórri erlendri sjónvarpsþáttaröð, Örnen, en gekk svo í gegnum langt tímabil þar sem hún vildi alls ekki verða leikkona. Faðir Unnar er myndilstarmaðurinn Jón Axel Björnsson sem var með vinnustofuna sína á jarðhæðinni heima hjá þeim, það var listafólk allt í kringum hana. Við fórum víða í spjallinu með Unni Birnu, ræddum leiklistina, nýju kvikmyndina og ýmislegt fleira í viðtalinu. Svo kom Sigurlaug Margrét auðvitað í matarspjallið í dag. Það var ekki laust við að það hafi verið talsverð vorþrá í því spjalli og heitt súkkulaði kom talsvert við sögu. Tónlist í þættinum í dag Fallegur dagur / Bubbi (Bubbi) Tell Me That it Isn’t True / Bob Dylan (Bob Dylan) Trouble / Cat Stevens (Cat Stevens) UMSJÓN: GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR OG GUNNAR HANSSON

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Feb 20, 2026

Embed this episode

NOW PLAYING

Unnur Birna Jónsdóttir Backman föstudagsgestur og vorþrá í matarspjallinu

0:00 53:10

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 53 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on February 20, 2026.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!