Vaðlaheiðagöng, vinkill um mælieiningar og Þröstur lesandinn episode artwork

EPISODE · Jan 22, 2024 · 50 MIN

Vaðlaheiðagöng, vinkill um mælieiningar og Þröstur lesandinn

from Mannlegi þátturinn

Vaðlaheiðagöng er heiti á nýju verki sem sviðslistahópurinn Verkfræðingar munu frumsýna á Nýja sviði Borgarleikhússins 2.febrúar. Það má segja að verkið fjalli um brothætt samband manns og náttúru. Karl Ágúst Þorbergsson, listrænn stjórnandi verksins er ný hættur sem lektor við sviðslistadeild LHÍ og farinn í húsamíðanám. Við ræddum við Karl í dag. Við fengum svo vinkil frá Guðjóni Helga Ólafssyni úr flóanum í dag. Í þetta sinn var vinklinum brugðið á lítinn leikþátt sem fjallar um mismunandi mælieiningar með áherslu á mun metrakerfisins og þeirri aðferða sem algengast er að beita í Bandaríkjum Norður-Ameríku. Svo var það lesandi vikunnar, en að þessu sinni var það Þröstur Helgason doktor í bókmenntafræði og stofnandi KIND útgáfu, en útgáfan stendur fyrir námskeiði um Eggert Pétursson listmálara í tilefni af útkomu nýrrar bókar um listamanninn. En við fengum auðvitað að vita hvaða bækur Þröstur hefur verið að lesa undanfarið og hvaða bækur og höfundar hafa haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. Þröstur talaði um eftirfarandi bækur og höfunda: Ýmsar bækur sem fjalla á einn eða annan hátt um bláa litinn, Ljóðasafn Jónasar Hallgrímssonar All That is Solid Melts Into Air e. Marshall Berman David Scott Kastan: On Color Paradísamissir e. John Milton í nýrri þýðingu Jóns Erlendssonar Svo nefndi Þröstur fræðifólkið Michel Foucault, Roland Barthes, Matthías Viðar Sæmundsson, Ástráður Eysteinsson, Jón Karl Helgason, Dagný Kristjánsdóttir og Helga Kress, sem öll hafa á einn eða annan hátt haft áhrif á hans störf og skrif. Tónlist í þættinum í dag: Sólarsamban / Rebekka Blöndal (Ásgeir Ásgeirsson, Rebekka Blöndal og Stefán Örn Gunnlaugsson) Heim / Magni Ásgeirsson (Magni Ásgeirsson og Ásgrímur Ingi Ásgrímsson) Winning Streak / Glen Hansard (Glen Hansard) UMSJÓN: GUNNAR HANSSON OG GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR

Episode metadata supplied by the publisher feed · Published Jan 22, 2024

Embed this episode

NOW PLAYING

Vaðlaheiðagöng, vinkill um mælieiningar og Þröstur lesandinn

0:00 50:00

No transcript for this episode yet

We transcribe on demand. Request one and we'll notify you when it's ready — usually under 10 minutes.

No similar episodes found.

Frequently Asked Questions

How long is this episode of Mannlegi þátturinn?

This episode is 50 minutes long.

When was this Mannlegi þátturinn episode published?

This episode was published on January 22, 2024.

Can I download this Mannlegi þátturinn episode?

Yes. Use the download control on the episode player to save the publisher-provided media file.
URL copied to clipboard!